fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. apríl 2026 20:30

Jón Pétur Zimsen og Ása Berglind Hjálmarsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Færsla Jón Péturs Zimsen þingmanns Sjálfstæðisflokksins þar sem hann lýsir því yfir að konur á aldrinum 15-25 ára glími við mikla vanheilsu andlega og virðist rekja það til minnkandi fæðingartíðni í þessum aldurshóp og aukinnar áherslu á starfsframa og menntun, hefur vakið töluverð viðbrögð. Hefur færslan vakið reiði meðal kvenna, þar á meðal í hópi þeirra kvenna sem eiga sæti á Alþingi. Segist ein þeirra hafa eignast sitt fyrsta barn á þessum aldri og það hafi verið of snemmt.

Jón Pétur hefur verið sakaður um að vilja hverfa aftur til þeirra tíma þar sem konur voru fyrst og fremst heimavinnnandi og lutu vilja eiginmanna sinna í flestu. Því neitar hann í samtali við Vísi. Ítrekar hann það í færslu á Facebook:

„Það er mikilvægt að við höfum öll tilgang í lífinu og látum ekki hamstrahjólið og efnisleg gæði trompa tengsl fjölskyldunnar og þau lífsgæði sem því fylgja. Með því vildi ég alls ekki gefa í skyn að konur ættu að vera heimavinnandi eins og sumir hafa lesið í skrif mín. Alls ekki.“

Hina umdeildu færslu skrifaði hann á X.

Of ung

Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona Samfylkingarinnar segir í Facebook-færslu málflutning Jóns Péturs sorglegan. Það sé þvert á móti ekki æskilegt að konur eignist börn svona ungar:

„Það er sorglegt að fylgjast með þeirri vegferð sem Sjálfstæðisflokkurinn er á. Hér er þingmaður á harðahlaupum á eftir Miðflokknum beint niður á botninn í umræðunni. Hann virðist ekki átta sig á því að ein stærsta ástæðan fyrir því að færri konur eignast börn í dag er sú að fleiri og fleiri konur hafa áttað sig á því að það er betra að gera það þegar maður hefur fullan þroska til.“

Ása Berglind setur orð í Jóns í samhengi við sitt eigið líf en samkvæmt vef Alþingis er hún þriggja barna móðir en það elsta fæddist árið sem Ása Berglind varð 18 ára:

„Börn hættu að eignast börn sem er góð og EÐLILEG þróun í nútíma samfélagi. Þetta get ég sagt vegna þess að ég var barn þegar ég eignaðist barn og vildi óska þess að hún hefði komið til mín þegar ég var búin að öðlast meiri þroska svo ég hefði geta gefið henni sama uppeldi og yngri börnin mín fengu, þegar ég var búin að mennta mig, þroskast og verða að fullorðinni manneskju. Það er að verða skýrar og skýrar að Sjálfstæðisflokkurinn vill verða eins og Miðflokkurinn og hverfa aftur til fortíðar þegar börn eignuðust börn og hinsegin fólk fékk ekki að vera til. Ömurlegt.“

Að mennta kerlingar

Helga Vala Helgadóttir fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar lýsir yfir áhuga á að vita hvað Hildi Sverrisdóttur og Bryndísi Haraldsdóttur þingkonum Sjálfstæðisflokksins finnst um færslu Jóns Péturs.

Fleiri þingkonur bæði fyrrverandi og núverandi taka til máls í athugasemdum við færslu Helgu Völu.

Ragnheiði Ríkharðsdóttur fyrrum þingmanni Sjálfstæðisflokksins er ekki skemmt:

„Ömurleg færsla hjá þingmanninum svo ekki sé meira sagt.“

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er enn beinskeyttari:

„Að við tölum nú ekki um hvað þetta sparar í menntamálum enda dýrt vesen að mennta þessar kellingar sem verða svo bara óhamingjusamar yfir öllum þessum tækifærum sem þeim standa til boða í nútímasamfélagi. Besta leiðin áfram er lóðbeint afturábak. Þetta veit JPZ.“

Jódís Skúladóttir fyrrum þingkona Vinstri grænna vekur athygli á að Jón Pétur virðist lítið pæla í að ekki séu allar konur gagnkynhneigðar:

„Hvað á að gera við lessurnar? Og er ok að hlekkja sig frekar við air-fryerinn? Er að spyrja fyrir vinkonu….“

Fleiri konur en þær sem sitja eða hafa setið á Alþingi taka þátt í umræðunni og karlar gera það líka. Sumir benda á að Jón Pétur sé ekki að fara rétt með niðurstöður rannsókna. Meðal þeirra sem benda á þetta er Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og dósent við Háskóla Íslands:

„Ég átta mig ekki alveg á hvaða upplýsingar maðurinn er að vitna í. En í nýlegustu skýrslum embætti landlæknis um geðheilbrigði kemur fram að sjálfmetin andleg heilsa þeirra sem eiga í fjárhagserfiðleikum er verst, óháð kyni. Skiljanlega. Og því meiri menntun sem konur eru með því betri telja þær sína andlega heilsu, sem á reyndar líka við um karla. Ályktanirnar sem hann er að draga eru því kolrangar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Risastórt kókaínmál á Austurlandi

Risastórt kókaínmál á Austurlandi
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“