fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fréttir

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. apríl 2026 11:30

Mynd: Facebook-síða Skattsins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirskattanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki sem starfar í útgerð og fiskvinnslu hafi, gagnstætt því sem ákvörðun ríkisskattstjóra kvað á um, hafi verið heimilt að draga ýmsan rekstrarkostnað frá tekjuskatti, þar á meðal ferðir starfsmanna erlendis á vígsluathafnir skipa. Hins vegar var kröfum um frádráttarbærni ýmissa annarra útgjaldaliða hafnað, meðal annars kaupum á líkamsræktarhjóli fyrir áhöfn skips fyrirtækisins.

Ríkisskattstjóri hafði hækkað skattstofn fyrirtækisins til tekjuskatts vegna gjaldáranna 2019, 2020 og 2021 um samtals rúmlega 110 milljónir króna. Stofn til greiðslu tryggingargjalds var hækkaður og innskattur fyrir árin 2018 og 2019 um rúmlega 8,2 milljónir. Innskattur er virðisaukaskattur sem fyrirtæki greiðir við kaup á vörum og þjónustu vegna rekstrarins og á að fá endurgreiddan en á móti því kemur útskattur, virðisaukaskattur af vörum og þjónustu sem fyrirtækið er að selja.

Lækkaði ríkisskattstjóri gjaldfærðan rekstrarkostnað í skattskilum félagsins og vildi meina að í mörgum tilvikum hefði verið gjaldfærður kostnaður sem væri ekki frádráttarbær samkvæmt lögum um tekjuskatt og í sumum tilvikum með réttu tilheyrt öðrum tengdum félögum. Í þeim tilvikum væri ekki annað séð en að stofnað hefði verið til þessa kostnaðar vegna rekstrarhagsmuna samstæðunnar, sem útgerðarfyrirtækið er hluti af, sem slíkrar og hefði hann því ekki tengst tekjuöflun fyrirtækisins.

Þurrkun

Ríkisskattstjóri lækkaði gjaldfærðan rekstrarkostnað vegna framkvæmda við húsnæði í eigu fyrirtækisins en það var notað fyrir þurrkun. Mat ríkisskattstjóri sem svo að ekki hefði verið um viðhald húsnæðisins að ræða heldur endurbætur og því hefði átt að eignfæra kostnaðinn en ekki gjaldfæra. Í kæru fyrirtækisins var því andmælt og vísað til þess að ríkisskattstjóri hefði ekki rannsakað málið með fullnægjandi hætti en reikningar sýndu fram á að um hefðbundið viðhald hefði verið að ræða.

Gjaldfærður rekstrar og risnukostnaður vegna ferðar stjórnarmanns og hluthafa í fyrirtækinu til Þýskalands vegna vígslu skipa var lækkaður um 362.275 krónur. Ríkisskattstjóri rökstuddi þetta meðal annars með því að þótt ferðir sem í eðli sínu væru skemmti- eða orlofsferðir viðkomandi væru að einhverju leyti nýttar í þágu rekstrar væri ekki þar með sagt að kostnaður vegna ferðarinnar væri frádráttarbær. Enn fremur vísaði ríkisskattstjóri til þess að skipin væru í eigu þýsks félags sem væri hluti af þeirri samstæðu sem fyrirtækið tengdist. Vildi fyrirtækið meina að þessi niðurstaða tæki ekki mið af rekstrarlegum veruleika þess og hvaða hagsmuni það væri að vernda en tilvísun ríkisskattstjóra til viðskipta við tengda aðila hefði enga þýðingu varðandi frádráttarbærni kostnaðar. Hagsmunir fyrirtækisins væru fólgnir í því að auglýsa sig, styrkja tengsl við þriðju aðila sem keyptu á endanum vörur þess þó þær væru almennt seldar af tengdum félögum til þessara aðila.

Með sömu rökum lækkaði ríkisskattstjóri gjaldfærðan kostnað vegna ferðar á vígslu skips í Frakklandi um 1,3 milljónir króna. Í ferðina fóru meðal annars framkvæmdastjóri fyrirtækisins, hluthafi og skipstjóri og vélstjóri hjá fyrirtækinu. Hluti ferðalanganna tók maka sína með og samþykkti fyrirtækið að kostnaður vegna makanna væri ekki frádráttarbær en kostnaður vegna starfsmanna ætti að vera það enda ferðin farin í rekstrarlegum tilgangi.

Deildu fyrirtækið og ríkisskattstjóri síðan um frádráttarbærni kostnaðar vegna fleiri ferða á vígsluathafnir skipa.

Tónleikar

Fyrirtækið andmælti því einnig að ríkisskattstjóri hefði lækkað gjaldfærðan kostnað vegna bæjarhátíðar árin 2018 og 2019 en þar hefði verið um auglýsinga- og markaðskostnað að ræða.

Loks lækkaði ríkisskattstjóri innskatt hjá fyrirtækinu vegna æfingahjóls sem keypt var fyrir áhöfn á skipi í eigu þess. Fyrirtækið færði 40.306 krónur í innskatt vegna hjólsins á þeim forsendum að um afþreyingu til heilsubótar væri að ræða og þar með starfsmannatengdan kostnað væri að ræða. Eðli máls samkvæmt væri staðan sú að starfsmenn gætu ekki gengið eða sinnt eðlilegri hreyfingu þar sem þeir væru fastir um borð í skipi. Mikilvægt væri fyrir heilsu starfsmanna að hafa aðgang að líkamsræktartæki og væri því um að ræða tæki sem hefði beina tengingu við sölu á vörum og skattskyldri þjónustu.

Í niðurstöðu yfirskattanefndar er fallist að hluta til á þá kröfu fyrirtækisins að draga kostnað við framkvæmdir við áðurnefnt hús frá skatti. Segir nefndin þó ekki koma skýrt fram í kæru fyrirtækisins í hverju framkvæmdirnar hafi verið fólgnar en rannsókn ríkisskattstjóra hafi verið ábótavant og fallast verði á það að hluti framkvæmdanna hafi verið vegna endurbóta og þar með frádráttarbærar frá skatti.

Nefndin fellst hins vegar á hluta af kröfum fyrirtækisins um að ferðakostnaður sem ríkisskattstjóri taldi ekki frádráttarbæran skuli vera það. Þegar kemur að ferðum starfsmanna á vígsluathafnir skipa erlendis segir nefndin að ferðirnar hafi verið nauðsynlegar til að efla tengsl og afla nýrra viðskiptavina. Það skipti ekki máli þótti um hafi verið að ræða skip í eigu félags innan sömu samstæðu og fyrirtækið.

Kröfu um að kostnaðurinn vegna bæjarhátíðarinnar yrði dregin frá skatti var hins vegar hafnað.

Þegar kom að æfingahjólinu sem fyrirtækið keypti fyrir áhöfnina hafnaði nefndin því að leyfilegt væri að lækka innskatt vegna kaupanna. Hvað sem liði mikilvægi heilsueflingar starfsmanna um borð í skipinu þætti blasa við að öflun líkamsræktartækis til nota fyrir starfsmenn varðaði ekki eingöngu sölu skattaðila á vörum og skattskyldri þjónustu í skilningi laga um virðisaukaskatt og reglugerðar um innskatt.

Niðurstaðan var að Yfirskattanefnd hækkaði frádráttarbæran rekstrarkostnað fyrirtækisins, frá því sem ríkisskattstjóri ákvað, um rúmlega 3 milljónir króna vegna rekstraráranna 2018 og 2019 en hafnaði að öðru leyti kröfum þess.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“

Dagur reifar ömurlegar afleiðingar Brexit – „Þær eldast illa yfirlýsingar íslenskra ráðamanna“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Elías Georgsson sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 12 ára dreng

Elías Georgsson sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 12 ára dreng
Fréttir
Í gær

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“

Sandra ekki sátt: „Við eigum að velja uppbyggingu fram yfir niðurskurð“
Fréttir
Í gær

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn

Flestum finnst stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum – Píratar eru óánægðari en Miðflokksmenn