fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026

Yfirskattanefnd

Íslensk OnlyFans-stjarna fær frádrátt frá skatti vegna kaupa á undirfötum

Íslensk OnlyFans-stjarna fær frádrátt frá skatti vegna kaupa á undirfötum

Fréttir
Fyrir 2 vikum

Íslensk kona sem hefur framleitt og selt erótískt myndefni í gegnum vefsíðuna OnlyFans á rétt á að draga kaup á undirfötum frá skatti af þeim tekjum sem hún hefur haft af starfseminni. Þetta er niðurstaða yfirskattanefndar. Kærði konan til nefndarinnar úrskurð ríkisskattstjóra um endurálagningu opinberra gjalda fyrir gjaldárin 2022, 2023 og 2024. Voru henni færðar Lesa meira

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Fréttir
19.04.2026

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað því að fella úr gildi úrskurð skattrannsóknarstjóra og staðfestingu yfirskattanefndar á þeim úrskurði sem snýst um endurákvörðun opinberra gjalda og virðisaukaskatts fyrirtækis. Voru forsvarsmenn fyrirtækisins sagðir hafa fengið þrjá fíkniefnaneytendur til að gefa út tilhæfulausa reikninga í þeirra nafni á fyrirtækið sem hafi lagt fé inn á bankareikninga, í nafni umræddra Lesa meira

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn

Fréttir
10.04.2026

Yfirskattanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki sem starfar í útgerð og fiskvinnslu hafi, gagnstætt því sem ákvörðun ríkisskattstjóra kvað á um, hafi verið heimilt að draga ýmsan rekstrarkostnað frá tekjuskatti, þar á meðal ferðir starfsmanna erlendis á vígsluathafnir skipa. Hins vegar var kröfum um frádráttarbærni ýmissa annarra útgjaldaliða hafnað, meðal annars kaupum á Lesa meira

Stórtapaði á því að fara ekki inn á Ísland.is

Stórtapaði á því að fara ekki inn á Ísland.is

Fréttir
06.02.2026

Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra um að hækka skattstofn ónefnds manns fyrir að telja ekki fram fjármagnstekjur sem námu rétt undir 15 milljónum króna. Maðurinn kærði ákvörðunina á þeim grundvelli að andmælaréttur hans hefði ekki verið virtur en honum hafi aldrei borist nein bréf vegna málsins og hafi komið því af fjöllum þegar vinnuveitandi hans Lesa meira

Gerði afdrifarík mistök áður en hann fór um borð í Norrænu

Gerði afdrifarík mistök áður en hann fór um borð í Norrænu

Fréttir
21.12.2025

Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra í máli bíleiganda. Eigandinn hafði flutt bílinn tímabundið úr landi, nánar tiltekið með ferjunni Norrænu en var þrátt fyrir brottför úr landi rukkaður um kílómetragjald. Hafði eigandinn gert þau mistök að skrá ekki rafrænt stöðu akstursmælis bílsins fyrir brottförina. Kærði eigandinn úrskurð ríkisskattstjóra um að hann skyldi borga kílómetragjald af Lesa meira

Keypti íbúð af eigin fyrirtæki á of lágu verði

Keypti íbúð af eigin fyrirtæki á of lágu verði

Fréttir
30.10.2025

Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra í máli ónefnds manns sem er einn þriggja eigenda fyrirtækis. Hafði maðurinn keypt íbúð af fyrirtækinu í fjölbýlishúsi sem þetta sama fyrirtæki byggði. Taldi ríkisskattstjóri kaupverðið hafa verið óeðlilega lágt og færði manninum mismun kaupverðs annars vegar og matsverðs hins vegar til skattskyldra tekna sem gjöf. Úrskurður ríkisskattstjóra var kveðinn Lesa meira

Skatturinn neitaði að trúa því að hann hefði ekki búið frítt í Airbnb-íbúð

Skatturinn neitaði að trúa því að hann hefði ekki búið frítt í Airbnb-íbúð

Fréttir
08.10.2025

Úrskurði ríkisskattstjóra, æðsta yfirmanns Skattsins, um endurákvörðun opinberra gjalda ónefnds manns hefur verið vísað aftur til embættisins af yfirskattanefnd. Meint húsnæðishlunnindi mannsins voru færð honum til tekna en ríkisskattstjóri vildi meina að maðurinn hefði búið endurgjaldslaust í íbúð, í eigu fyrirtækis, á ónefndum stað en maðurinn var með lögheimili sitt skráð í íbúðinni. Maðurinn þverneitaði Lesa meira

Vestmannaeyjabæ neitað um endurgreiðslu vegna skemmda á einu neysluvatnslögn bæjarins

Vestmannaeyjabæ neitað um endurgreiðslu vegna skemmda á einu neysluvatnslögn bæjarins

Fréttir
25.09.2025

Yfirskattanefnd hefur staðfest synjun ríkisskattstjóra á beiðni Vestmannaeyjabæjar um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna viðgerðar á neysluvatnslögn bæjarins eftir að miklar skemmdir urðu á henni. Vísa skattayfirvöld til þess að viðgerð af þessu tagi flokkist ekki undir björgunarstörf vegna náttúruhamfara og almannavarna. Í nóvember 2023 varð tjón á neysluvatnslögn Eyjamanna þegar akkeri fiskiskipsins Hugins VE festist Lesa meira

Sitja í súpunni eftir að fyrirtæki föðurins keypti íbúðina

Sitja í súpunni eftir að fyrirtæki föðurins keypti íbúðina

Fréttir
23.09.2025

Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra um að hjón sem voru eigendur íbúðar í fjölbýlishúsi en seldu hana til fyrirtækis, í eigu föður annars þeirra, skuli greiða skatt af þeim hagnaði sem skapaðist þegar íbúðin var seld fyrirtækinu á verði sem var um 10 milljónum króna yfir ásettu verði. Kæran var lögð fram til nefndarinnar í Lesa meira

Skatturinn trúði því ekki að heimavinnandi húsmóðir hafi verið tekjulaus

Skatturinn trúði því ekki að heimavinnandi húsmóðir hafi verið tekjulaus

Fréttir
11.06.2025

Yfirskattanefnd hefur staðfest ákvörðun ríkisskattstjóra um að tekjur konu sem segist vera heimavinnandi húsmóðir fyrir árið 2023 skuli áætlaðar um 4,8 milljónir króna. Tók ríkisskattstjóri, æðsti yfirmaður Skattsins, það ekki trúanlegt að konan hefði verið tekjulaus þetta ár og vildi meina að tekjur sambýlismanns hennar dygðu ekki til að framfleyta þeim báðum og tveimur börnum Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af