Páll Vilhjálmsson, fyrrverandi framhaldsskólakennari og landsfrægur bloggari, var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru Lögreglustjórans í Reykjavík fyrir hatursorðræðu.
Samtökin 78 kærðu Pál til lögreglu vegna ummæla í bloggfærslum hans um hinsegin námsefni í skólum. Ákærusvið lögreglunnar ákærði hann síðan fyrir brot á a.-lið 233. greinar hegningarlaga, sem er svohljóðandi:
„Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernisuppruna eða þjóðlegs uppruna, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, fötlunar, kyneinkenna, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“
Ákært var vegna eftirfarandi tveggja ummæla í bloggpistlum Páls:
1. Samtökin 78 eru regnhlífarsamtök og lífsskoðunarfélag fullorðinna sem áhugasamir eru um klám, kynlíf, kynjaveröld og tælingu barna.
2. Kennsluefnið er tæling dulbúin sem upplýsingar. Meðfædd blygðunarsemi barna er skipulega brotin niður. Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi og það jafnvel ofbeldiskynlífi – BDSM. Börn eru gerð efins um eigin sjálfsmynd og talin trú um að þau séu mögulega fædd í röngu kyni. Ringluð börn og óörugg eru síður í stakk búin að veita viðnám fullorðnum með eitthvað misjafnt í huga. Út á það gengur tælingin.
Í dómsniðurstöðunni kemur fram að Páll hafi gert skýra grein fyrir ummælunum fyrir dómi og rökstutt þau. Jafnframt hafi komið glöggt fram að ummæli hans voru innlegg í þjóðfélagsumræðu um málefni sem mjög skiptar skoðanir eru um. Í dómnum segir að ekki verði séð að Páll hafi með ummælunum við tjáð ógnun eða háð í garð tiltekins hóps manna vegna kynhneigðar og kynvitundar þeirra. Einnig verði ekki séð að hann hafi með ummælum sínum dreift rógbugði eða smánað hóp fólks eða Samtökin 78. „Verður eigi heldur, að virtum skýringum ákærða og gögnum málsins, ekki séð að tjáning ákærða, sem hann er ákærður fyrir í málinu, feli hlutrænt í sér slíka óbeit, andúð, fyrirlitningu eða fordæmingui að telja megi hana til hatursoðræðu í garð þess hóps fólk sem henni var beint að,“ segir í dómum.
Í dómnum er minnt á að umrædd lagagrein sem Páll var sakaður um brot á feli í sér takmörkun á tjáningarfrelsi sem tryggt er í stjórnarskrá og hana beri af þeim sökum að túlka þröngt. Segir að ekki verði talið að Páll hafi með ummælum sínum farið út fyrir mörk leyfilegrar tjáningar, „allra síst að teknu tilliti til þeirra sönnunarkrafna sem gerðar eru í sakamálum.“
Páll Vilhjálmsson er því sýkn af kröfum ákæruvaldsins í þessu máli. Verjandi hans í málinu var Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður.