Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur ákveðið að fresta réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík um að bakhús á lóð nr. 4 við Leifsgötu, sem reist var árið 1950, skuli fjarlægt. Þetta kemur fram í bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar sem kveðinn var upp síðastliðinn föstudag.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík ákvað þann 6. maí síðastliðinn að krefjast þess að bakhús sem stendur við bílskúr á umræddri lóð yrði rifið, þar sem það nyti ekki byggingarleyfis, bryti gegn skipulagi svæðisins og væri talið valda brunahættu. Kærandi, eigandi hússins, mótmælti ákvörðuninni og lagði fram kæru til úrskurðarnefndarinnar 26. maí þar sem hann krafðist þess að ákvörðunin yrði felld úr gildi. Jafnframt var farið fram á að réttaráhrifum hennar yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar.
Í kæru var meðal annars bent á að húsið hefði staðið óáreitt í 75 ár og því væri ólíklegt að veruleg hætta stafaði af því. Einnig var því haldið fram að ákvörðunin væri óljós og byggði ekki á skýrum lagagrundvelli, auk þess sem hún bryti gegn meðalhófsreglu og stjórnarskrárvörðum eignarrétti.
Reykjavíkurborg lýsti því yfir að hún legðist ekki gegn frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til meðferðar.
Í úrskurði nefndarinnar segir að þar sem um sé að ræða íþyngjandi ákvörðun og engar knýjandi aðstæður krefjist tafarlausra aðgerða, sé rétt að fresta réttaráhrifum hennar þar til endanleg niðurstaða liggi fyrir.