fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
Fréttir

Strætósvindlarar verða krafðir um fargjaldaálag

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 20. desember 2024 12:59

strætó, rafmagn, strætisvagn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í byrjun árs 2025 stefnir Strætó að því að byrja að leggja fargjaldaálag á þá farþega sem ekki geta sýnt fram á gilt fargjald við eftirlit. Álagið er byggt á lögum nr. 28/2017 um farþegarflutninga og farmgjöld á landi og reglugerð nr. 1021/2023. Börn yngri en 15 ára verða ekki krafin um fargjaldaálag.

Álaginu er meðal annars ætlað að minnka svindl um borð í vögnum og að fólk ferðist um miðalaust eða á röngu fargjaldi og greiði þar af leiðandi ekki til almenningssamgangna, eins og segir í tilkynningu frá Strætó.

Fargjaldaálaginu er þannig ætlað að tryggja jafnræði og sanngirni í almenningssamgöngum. Með því að tryggja að allir farþegar greiði rétt fargjald er hægt að viðhalda góðri þjónustu og koma í veg fyrir að aukakostnaður vegna svindls bitni á öðrum farþegum.

Hvað er fargjaldaálagið hátt?

Almennt: 15.000 kr.

Ungmenni: 7.500 kr.

Aldraðir: 7.500 kr.

Öryrkjar: 4.500 kr.

Eftirlitsmenn hafa verið um borð í vögnum í mörg ár og verður þetta nú eitt af þeirra verkefnum. Ávallt hefur verið heimilt að vísa fólki úr vögnum hafi það ekki greitt rétt fargjald en nú bætist við að það sé hægt að innheimta fargjaldaálag af þeim sem geta ekki sýnt rétt fargjald við eftirlit. Álagið er innheimt í heimabanka eða greitt á staðnum eftir því sem við á.

Frekari upplýsingar um fargjaldaálag má sjá hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bílaleiga rukkaði viðskiptavin um háa upphæð á grundvelli óréttmætra skilmála

Bílaleiga rukkaði viðskiptavin um háa upphæð á grundvelli óréttmætra skilmála
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hundur aflífaður þrátt fyrir hörð mótmæli eigenda – Sagður hættulegur og ekki viðbjargandi

Hundur aflífaður þrátt fyrir hörð mótmæli eigenda – Sagður hættulegur og ekki viðbjargandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf að borga fyrir fráveituna þótt húsið sé ekki tilbúið

Þarf að borga fyrir fráveituna þótt húsið sé ekki tilbúið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sammála um að heilbrigðiseftirlitið eigi ekki að hafa neitt um Reykjavíkurflugvöll að segja – Vinnsla nýs starfsleyfis hefur tekið tvö ár

Sammála um að heilbrigðiseftirlitið eigi ekki að hafa neitt um Reykjavíkurflugvöll að segja – Vinnsla nýs starfsleyfis hefur tekið tvö ár
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leita til Byggðastofnunar vegna löggæslu í Grímsey og Hrísey

Leita til Byggðastofnunar vegna löggæslu í Grímsey og Hrísey
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þetta voru meðaleinkunnir stúdenta skólaársins 2023-2024 við lok grunnskóla – Sundurliðað eftir einstaka skólum

Þetta voru meðaleinkunnir stúdenta skólaársins 2023-2024 við lok grunnskóla – Sundurliðað eftir einstaka skólum