„Jæja, ég hreinsaði vinalistann minn og athugasemdakerfið af þessari óværu enda líð ég ekki hatursorðræðu á minni síðu,“
segir Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti við Háskólann á Bifröst og fyrrum alþingismaður.
Í gær birti Ólína mynd af palentínskri fjölskyldu sem sameinuð var á Keflavíkurflugvelli og skrifaði með: „Velkomin til Íslands.„
Í færslu á Facebook segir Ólína að „miklar bölbænir voru mér fluttar í haturspósti sem settur var sem athugasemd við „Velkomin“ færsluna mína hér neðar. Var mér þar óskað ófarnaðar með orðum sem ég ætla ekki að heiðra með því að hafa þau eftir. Fast á eftir fylgdu fleiri athugasemdir með hatursorðræðu í garð múslima og Palestínumanna.“
Segist Ólína spyrja sig „hvernig falleg mynd af ungri konu og tveim brosandi börnum sem komin eru í örugga höfn, getur framkallað annað eins hatur og heift er mér hulin ráðgáta. Og satt að segja furða ég mig líka á sumum öðrum ummælum sem hér hafa fallið.“
Segir Ólína að af þessu tilefni hafi rifjast upp fyrir henni orðatiltækið um að „frammi fyrir gæskunni (eða hreinleikanum?) afhjúpist illskan“ – eitthvað í þá átt.
Frammi fyrir giftusamlegri fjölskyldusameiningu umturnast fólk sem líklega þekkir hvorki né skilur inntak mannúðar. Mannúð er ekki ölmusa. Hún er kjarni mennskunnar, hafin yfir landamæri og kynþætti. Hún á ekki einusinni að vera val. Hún er mannleg skylda.“