fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Rússar reyna að hemja óánægju eiginkvenna hermanna

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 7. desember 2023 06:30

Mynd/AFP

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússnesk yfirvöld reyna að hemja óánægju eiginkvenna þeirra hermanna sem hafa verið sendir til Úkraínu.

Þetta kemur fram í stöðumati breska varnarmálaráðuneytisins um gang stríðsins. Segir ráðuneytið að sumum konum hafi verið boðin greiðsla gegn því að þær láti eiga sig að mótmæla. Aðrar hafa hins vegar fengið öðruvísi meðferð þar sem ráðist hefur verið gegn þeim á Internetinu og lítið gert úr þeim og trúverðugleika þeirra.

Fjöldi kvenna mótmælti í síðasta mánuði og var nokkrum sinnum boðað til mótmæla.

Varnarmálaráðuneytið segir að líklega séu rússnesk yfirvöld mjög viðkvæm fyrir hugsanlegum mótmælum tengdum þeim hermönnum sem voru kvaddir í herinn í september á síðasta ári og hafa nú verið í fremstu víglínu í rúmlega eitt ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt