fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

Gyrðir Elíasson tekinn af starfslaunum – „Mér finnst það ósköp einfaldlega til skammar“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 4. desember 2023 15:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn margrómaði rithöfndur og ljóðskáld, Gyrðir Elíasson, hlaut ekki starfslaun listamanna að þessu sinni. Gyrðir, sem er geysilega afkastamikill og hlaut Bókmenntaverðlaun Norðulandaráðs árið 2010, hefur verið samfellt á starfslaunum listamanna áratugum saman.

Fyrrverandi útgefandi Gyrðis, Halldór Guðmundsson, fer ófögrum orðum um þessa ákvörðun starfslaunanefndar, í Facebook-færslu. Þar segir hann:

„Hef ekki lagt það í vana minn að þusa hér, hvorki yfir tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna né starfslaunum rithöfunda, en að þessu sinni fæ ég ekki orða bundist: Gyrðir Elíasson, afbragðshöfundur til áratuga á bundið mál sem laust, fær ekki krónu úr launasjóði rithöfunda. Það má vera vel settur sjóður sem telur sig hafa efni á að neita honum. Mér finnst það ósköp einfaldlega til skammar. Myndin er af þeim fjórum bókum, frumsömdum, sem Gyrðir sendi frá sér í ár og á síðasta ári.“

Í umræðum undir færslunni staðfestir Halldór að hann hafi kynnt sér málið, Gyrðir hafi sótt um starfslaun en fengið höfnun. Færsla Halldór er ekki opin margir tjá sig. Verðlaunaskáldið Elísabet Kristín Jökulsdóttir segi:

„Hneyksli, einfaldlega, Gyrðir er fremstur meðal jafningja af íslenskum rithöfundum og bjargaði minni sögu sem er að verða til með sínum nýju ljóðabókum. Gyrðir er goðsagnavera sem kemur útúr þokunni.“

Egill Helgason, stjórnandi bókmenntaþáttarins Kiljunnar, segir:

„Með algjörum ólíkindum. Velti fyrir mér hvort hafi gripið um sig ólæsi – fólk í nefndum sjái ekki hvílík afburða bókmenntaverk ljóðin hans Gyrðis eru.“

Knut Ødegård, fyrrverandi forstöðumaður Norræna hússins, er ómyrkur í máli:

„Já, þetta er sannarlega til skammar! Nóbelskáldið Jon Fosse sagði í viðtali nýlega að Gyrðir er verðugt nóbelskáld framtíðarinnar.“

 

Sjá einnig: Þessi fá listamannalaun árið 2024 – Rithöfundar fá mest

 

Fréttin hefur verið uppfærð. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Skemmdarverkin í Frakklandi: Fertugur rússneskur kokkur grunaður um græsku

Skemmdarverkin í Frakklandi: Fertugur rússneskur kokkur grunaður um græsku
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Skemmdarverk unnin í nótt: Franska lestarkerfið lamað rétt áður en opnunarhátíð Ólympíuleikanna fer fram

Skemmdarverk unnin í nótt: Franska lestarkerfið lamað rétt áður en opnunarhátíð Ólympíuleikanna fer fram
Fréttir
Í gær

Uppnám í litlum grænlenskum bæ vegna tveggja ísbjarnaheimsókna – „Fólk er bara í sjokki“

Uppnám í litlum grænlenskum bæ vegna tveggja ísbjarnaheimsókna – „Fólk er bara í sjokki“
Fréttir
Í gær

Fimm í gæsluvarðhaldi eftir stóra rassíu – Mikið af fíkniefnum og þrjár milljónir í seðlum haldlögð

Fimm í gæsluvarðhaldi eftir stóra rassíu – Mikið af fíkniefnum og þrjár milljónir í seðlum haldlögð
Fréttir
Í gær

Grímur: Þetta hefur breyst síðan hann skrifaði færsluna sem vakti athygli margra 

Grímur: Þetta hefur breyst síðan hann skrifaði færsluna sem vakti athygli margra 
Fréttir
Í gær

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“