Tilkynningar um tímabundnar breytingar á leiðarkerfi Strætó í óveðrinu í gær virðast ekki hafa skilað sér með nægilega skilvirkum hætti til viðskiptavina fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að farið verði yfir verklag og reynt að bæta upplýsingastreymi til farþega.
Eins og alþjóð varð vör við geisaði vonskuveður í gær víða um land. Gular og appelsínugular viðvaranir voru í gangi frá því um hádegi og þó að veðurofsinn hafi ekki alltaf náð þeim hæðum sem hafði verið spáð þá urðu samt ýmiskonar samgöngutruflanir víða.
Farþegar Strætó bs. urðu varðir við að leiðakerfi fyrirtækisins tók tímabundnum breytingum vegna ófærðar en því miður komu breytingarnar sumum farþegum, sérstaklega af yngri kynslóðinni, í opna skjöldu, og urðu sumir strandaglópar á stoppistöðvum langt frá áfangastöðum sínum.
Það gilti til að mynda um farþega á leið 18, sem venjulega fer upp í Úlfarsárdal en kl.16.30 í gær barst tilkynning frá Strætó um að vegna færðar yrði aðeins keyrt, það sem eftir lifði dagsins, upp í Jónsgeisla í Grafarholti frá Spöng og þar yrði vagninum snúið við.
Upplýsingarnar birtust á Twitter-síðu Strætó bs. auk þess sem tilkynning var sett inn á Klapp-appið sem flestir farþegar nota. Eins og áður segir virðist tilkynningin hafa farið framhjá mörgum notendum af yngri kynslóðinni sem var sagt að yfirgefa vagninn í óveðrinu og voru síðan strandaglópar uppi í Jónsgeisla.
Detour: Leið 18 30.01.2023 // Line 18 30.01.2023. Vegna færðar og veðurs fara vagnar á leið 18 hjáleið keyra Jónsgeisla til og frá Spöng // Due to weather and roadcontions buses on Line 18 will drive a detour, drive Jónsgeisli to and from Spöng #færðin
— Strætó (@straetobs) January 30, 2023
Á samfélagsmiðlum í gær mátti víða sjá foreldra hella úr skálum reiði sinnar vegna framkomu strætóbílstjóra sem gerði farþegum að yfirgefa vagna í storminum. Það hafi meðal annars endað með því að björgunarsveitir hafi komið einhverjum ungmennum til bjargar og keyrt þeim heim til sín, köldum og hröktum. Önnur hafi bankað grátandi upp á hjá kunningjum til að bjarga sér í skjól.
Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., staðfestir í skriflegu svari til DV að áðurnefnd vandræði hafi átt sér stað. Tilkynningar um breytingar á áætlun strætisvagna hafi ekki skilað sér nægilega vel til farþega.
„Við erum að fara yfir verklag varðandi þetta og hvað hægt er að gera betur varðandi upplýsingastreymi til farþega,“ segir Jóhannes Svavar.