fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Íslendingar bregðast við tíðindum dagsins – „Takk Þórólfur“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. maí 2022 14:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau stórtíðindi bárust í morgun að Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, hefur sagt starfi sínu lausu. Munu ástæður uppsagnarinnar vera bæði faglegar og persónulegar. Nú sé Ísland komið á nokkuð góðan stað varðandi faraldur COVID, núverandi bylgja að mestu yfirstaðinn, og nýr kafli að hefjast í starfsemi sóttvarnalæknis. Þórólfur sé að komast á aldur að ári er hann verður 70 ára og því tími kominn til að fá inn nýjan sóttvarnalæknir til að gera upp COVID-faraldurinn og bæta framtíðarviðbrögð við faröldrum.

Þórólfur hefur verið tíður gestur á heimilum landsmanna í gegnum faraldurinn í gegnum fundi almannavarna, viðtöl og hvað eina. Því hafa margir gripið í lyklaborðið og sent Þórólfi þakkir og kveðjur við þessi tímamót.

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason skrifar á Facebook:

„Manni er eiginlega hálf brugðið. Við stöndum í þakkarskuld við Þórólf. Hann hefur leitt okkur á farsælan hátt í gegnum kóvíð, þykist aldrei hafa öll svörin, er ekki of fullyrðingasamur, tekur mið af þeim upplýsingum sem honum berast, og nú þegar pestin hefur gengið verulega niður sýnist manni að flesta ákvarðanir hans hafi reynst vera farsælar. Þetta hefur verið feiknarlega erfitt og ábyrgðarmikið starf – svo maður er ekki hissa á því að hann kjósi að draga sig í hlé.“

Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur og fyrrum þingkona skrifar á Facebook:

„Það er bara allt svo fallegt og faglegt við hann Þórólf. Nú er hann búinn að skila okkur í höfn og ætlar að stíga til hliðar og (vona ég) hvíla sig. Það gerir hann með góðum fyrirvara en setur líka í hendur eftirmannsins að skoða hvernig til tókst. Er hægt að segja annað en takk Þórólfur, það hefði ekki verið hægt að gera þetta betur.“

Takk Þórólfur

Að eilífu

Ekki gengið um gólf fyrir Þórólf lengur

Búinn að skila sínu

Magnús Karl Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands skrifar meðal annars á Facebook:

„Takk Þórólfur. Þessum einstaka manni eigum við mikið að þakka. Hann hefur reynst einstaklega farsæll farsóttarlæknir á víðsjárverðum tíma heimsfaraldurs. hann hefur siglt milli skers og báru með frábærum árangri. Aðgerðir hafa byggst á umfangsmikilli gagnasöfnun, stöðugri endurskoðun á aðgerðum og hreinskilinni og opinni upplýsingagjöf. Óvíða hafi færri látist vegna Covid-19, þrátt fyrir að samfélagið í heild hafi fundið minna fyrir sóttvarnaraðgerðum en í mörgum öðrum samfélögum. 

Þetta er ekki sjálfgefið. Á haustmánuðum 1918 studdist landlæknir við „laissez faire“ (látum það danka) aðferðarfræði og hundruðir manna létust í kjölfarið á höfuðborgarsvæðinu. 

Ég fagna með Þórólfi að fá að komast úr hringiðu þessa erfiða tíma en hann skilur eftir sig stórt skarð sem verður vandfyllt.“ 

Undir færslu Magnúsar ritar læknirinn Tómas Guðbjartsson: „Sammála hverju orði.“

Ofangreint eru aðeins fáein dæmi um þær kveðjur sem Þórólfur hafa verið sendar í dag. Undir þeim fréttum sem hefur verið deilt af uppsögn Þórólfs í dag hafa borist hundruð athugasemda þar sem meginstefið virðist vera á sama veg – Takk Þórólfur og njóttu núna lífsins.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Í gær

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Í gær

Grunur um manndráp á Akureyri

Grunur um manndráp á Akureyri
Fréttir
Í gær

„Enn eitt dæmi um þær ógöngur sem mannanafnanefnd leiðist út í“

„Enn eitt dæmi um þær ógöngur sem mannanafnanefnd leiðist út í“
Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fara fram á gæsluvarðhald yfir fjórum erlendum mönnum vegna meints manndráps á Suðurlandi

Fara fram á gæsluvarðhald yfir fjórum erlendum mönnum vegna meints manndráps á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grunnskólakennari segir neyðarástand ríkja – Mjög fáir nemendur í hverfisskólanum geta lesið fyrirsagnir í dagblöðum við lok 10. bekkjar

Grunnskólakennari segir neyðarástand ríkja – Mjög fáir nemendur í hverfisskólanum geta lesið fyrirsagnir í dagblöðum við lok 10. bekkjar