Fimm ungir karlmenn hafa nú verið ákærðir fyrir árás sem átti sér stað í Borgarholtsskóla snemma á síðasta ári, en árásin vakti mikla athygli þar sem myndbönd af henni fóru sem eldur í sinu um netheima. Fréttablaðið greinir frá ákærunni en þar segir að ákæran sé í sjö liðum. Af þessum sjö liðum fjalla fim um líkamsárásir en hinir tveir liðirnir varða vopnalagabrot annars vegar og hins vegar brot gegn valdstjórninni.
Sjá einnig: Að minnsta kosti einn handtekinn eftir árás í Borgó – „Það fóru margir blóðugir út úr skólanum.“
Í ákæru greinir að við árásina hafi verkfærum á borð við hafnaboltakylfu, hníf, ljósaperu og skralli verið beitt auk hnefahögga og sparka. Meint vopnalagabrot varðar hnúajárn sem einn mannanna hafði í vörslum sínum og brot gegn valdstjórninni varðar það að einn maður sé grunaður um að hafa skallað fangavörð í andlitið á meðan sá var við skyldustörf á þessu ári.