fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fréttir

Sakamálarannsóknin á Innheimtustofnun sveitarfélaga – Umsvif Braga Axelssonar undir smásjá

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 15. apríl 2022 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og tíundað hefur verið í fréttum undanfarið stendur yfir víðtæk lögreglurannsókn á starfsemi Innheimtustofnunar  sveitarfélaga (IHS) og eru þrír menn með stöðu sakbornings í rannsókninni, hafa verið handteknir og yfirheyrðir en ekki úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þetta eru þeir Jón Ingvar Pálsson, fyrrverandi forstjóri stofnunarinnar, Bragi Rúnar Axelsson, fyrrverandi forstöðumaður útibús stofnunarinnar á Ísafirði, og Árni Rúnarsson, fyrrverandi kerfisfræðingur hjá stofnuninni.

Mennirnir hafa verið reknir frá störfum en rannsókn Ríkisendurskoðunar leiddi í ljós að IHS, sem annast innheimtu meðlagsgreiðslna, hafði með ólögmætum hætti útvistað verkefnum til einkafyrirtækis Braga, forstöðumanns útibús IHS á Ísafirði, lögmannastofunnar Offico. Samkvæmt gögnum sem DV hefur undir höndum fékk Offico greiddar rúmlega 43 milljónir króna frá IHS árið 2020.

Samkvæmt heimildum DV er þriðji sakborningurinn, kerfisfræðingurinn Árni Rúnarsson, náinn vinur Jóns Ingvars, fyrrverandi forstjóra IHS, og hækkaði Jón Ingvar mjög við hann laun.

Sjá einnig: Bragi fengið tæplega 50 milljónir frá Innheimtustofnun sveitarfélaga síðan vorið 2020

Þetta var haldlagt í húsleitunum

Athygli vekur að húsleitir hafa verið mjög víðtækar í rannsókninni þó að DV hafi ekki tölu á þeim. Hafa þær ekki takmarkast við þá þrjá menn sem hafa réttarstöðu sakbornings í málinu heldur einnig náð til nokkurra aðila sem tengjast Braga Axelssyni. Meðal þeirra er kona, lögfræðingur að mennt, sem er stjórnarformaður í ræstingafyrirtæki Braga, Vísnasöng, en það hefur sama aðsetur og lögmannastofan Offico. Vísnasöngur hefur undanfarin þrjú ár fengið greiðslur frá IHS fyrir ræstingar. Umrædd kona var starfsmaður IHS, sem og aðrir meðeigendur Vísnasöngs.

Samkvæmt heimildum DV var lagt hald á tölvur, usb-lykla og snjallsíma í húsleitunum.

Rannsóknin er svo viðamikil að marga grunar að hún snúist um eitthvað annað og meira en vafasama útvistun á verkefnum IHS til Braga.

Sjá einnig: Þrír handteknir vegna rannsóknar á Innheimtustofnun sveitarfélaga

Með stórt verkefni frá bænum og eiginkonan bæjarritari

Ljóst er að Bragi Axelsson hefur verið umsvifamikill og komið vel undir sig fótunum undanfarin ár. Auk þess að vera í vellaunuðu starfi sem forstöðumaður hjá IHS hefur hann skaffað lögmannastofu sinni, Offico, vænar tekjur með samningum við opinbera aðila. Auk verkefnanna frá IHS er Offico með stórt verkefni frá Ísafjarðarbær sem felst í innleiðingu persónuverndarlöggjafar fyrir Ísafjarðarbæ.

Eiginkona Braga, Bryndís Ósk Jónsdóttir, er bæjarritari Ísafjarðarbæjar og tók hún virkan þátt í því ferli sem leiddi til þess að verkefni fór til Offico. Bryndís var jafnframt um tíma í stjórn Offico. „Spurningin um hæfi hennar eða vanhæfi í málum sem varða Officio er mjög ofarlega á baugi,“ segir í frétt Bæjarins besta um málið í desember síðastliðnum.

Í fréttinni kemur fram að lögfræðistofunni Pacta, sem er með starfsstöð á Ísafirði, var ekki boðið að bjóða í verkefnið. Tilboð bárust frá Offico, Logos og Landslögum. Tilboð Offico þótti best og var gengið að því.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

17 ára piltur áfrýjar ekki dómi fyrir að bana Bryndísi Klöru

17 ára piltur áfrýjar ekki dómi fyrir að bana Bryndísi Klöru
Fréttir
Í gær

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“

Dagmar brá við óþægilegt símtal frá lögreglunni – Biggi Sævars lét verða af hótuninni – „Týpísk taktík hjá svona mönnum“
Fréttir
Í gær

Alvarleg staða á Landspítalanum – Ófaglærðir halda starfseminni gangandi þegar kemur að hjúkrun og umönnun

Alvarleg staða á Landspítalanum – Ófaglærðir halda starfseminni gangandi þegar kemur að hjúkrun og umönnun
Fréttir
Í gær

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 

Hvað hefði brúðkaup Bezos kostað á Íslandi? – „Var mjög rausnarlegur og ég komst upp í 2,7 milljarða“ 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst

Sjónvarpsstöðin SÝN opnar upp á gátt fyrir alla landsmenn frá og með 1. ágúst