Mikill eldsvoði varð í tveggja hæða húsi í Auðbrekku í Kópavogi í nótt. Húsið er á tveimur hæðum og búa um 20 manns í því, skv. heimildum DV.
Slökkvilið var kallað út vegna eldsvoðans upp úr kl. 3 í nótt. Samkvæmt tilkynningu frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var þá mikill eldur, reykur stóð út um glugga og íbúar voru komnir út úr húsinu. Gekk greiðlega að slökkva eldinn en reykur hafði borist um húsið og fóru reykkafarar um allt húsið til að tryggja að enginn væri inni og allir komnir út.
Strætó og Rauði krossinn aðstoðuðu slökkviliðið við að finna húsnæði fyrir íbúana í nótt. Eldurinn var bara í einu herbergi en þrátt fyrir það eru töluverðar skemmdir inni í húsinu.
DV fékk sendar meðfylgjandi myndir af vettvangi.