Hluthafar í Icelandair fylgjast margir, ef ekki flestir, grannt með breytingum á virði félagsins. Fjölmargir Íslendingar sáu sér leik á borði í hlutafjárútboðinu síðasta haust og eru því margir sem eiga einhverja hluti í félaginu. Það voru því án efa margir landsmenn sem brostu sínu breiðasta þegar þeir sáu að hæsta söluverð hlutar er 1,58 í dag en það er um 12,5% hækkun á einum degi.
En hver er ástæðan fyrir þessu hækkandi virði félagsins? Það er án efa margt sem spilar inn í það en líklega eru það fréttir um góðan árangur í bólusetningum hér á landi sem og eldgosið í Geldingadölum. Þá hefur auglýsing flugfélagsins á Times Square einnig vakið mikla athygli en um er að ræða stóra auglýsingu þar sem eldgosið er í aðalhlutverki.