fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Sólveig Anna segir starfsmann Eflingar hafa hótað að vinna henni mein

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 1. nóvember 2021 22:00

Sólveig Anna Jónsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir, fráfarandi formaður Eflingar, lýsir ógnvekjandi uppákomu sem hún lenti í fyrir tveimur vikum þar sem hún var boðuð á fund og tjáð að karlkyns starfsmaður skrifstofu Eflingar væri að hugsa um að fara heim til hennar og vinna henni mein. Hún greinir frá þessu á Facebook.

„Á Vísi í dag er sagt frá því að yfirlýsing mín um ástæður afsagnar minnar úr stöðu formanns Eflingar hafi „hleypt illu blóði í marga starfsmenn stéttarfélagsins“. Samkvæmt heimildum fréttastofu Vísis fannst starfsfólki að ég hafi gefið „opið skotleyfi“ á það með því að segja satt frá aðdraganda og ástæðum afsagnar minnar.

Þessi orð fengu mig til að hugsa um atburði sem gerðust á vinnustaðnum fyrir ríflega tveimur vikum. Þá gerðist það að ég var beðin að koma á fund þar sem mér var tilkynnt um að einn af karlkyns starfsmönnum skrifstofu Eflingar hefði lýst því yfir við annan starfsmann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en voru augljóslega einhvers konar ofbeldi.“

Þessi starfsmaður hafi látið það fylgja sögunni að hann hafi um árabil rispað bíl manns sem honum var illa við og það sannaði að honum væri alvara og væri fær um að fremja glæp.

„Hann bætti því við, að hann hefði ekki áhyggjur af að verða dæmdur í fangelsi vegna þess sem hann kynni gera mér, af því að jafnvel þó að hann yrði dæmdur þá þyrfti hann aldrei að sitja inni, þar sem hann væri með hreint sakavottorð.“

Sólveig segir að hún viti ekki til þess að hafa gert nokkuð á hlut þessa manns en hennar skilningur hafi verið sá að téður maður væri ósáttur við að annar starfsmaður fékk stöðuhækkun sem hall taldi sig eiga rétt á.

„Það er alvitað að hann er náinn fyrrum stjórnendum á skrifstofu Eflingar, þeim sömu sem hafa á síðastliðnum árum farið fram með endalausar lygar, hótanir um dómsmál og óhróður gegn mér, í fjölmiðlum og víðar.“

Sólveig segir að þetta dæmi sé staðfest með skriflegum vitnisburði sem sé til hjá mannauðsstjóra Eflingar og þetta sé aðeins eitt dæmi um það ofstæki og heift sem hún mátti sitja undir af hálfu starfsfólks Eflingar síðan hún tók við sem formaður.

Sólveig segir að í ljósi reynslunnar reikni hún fastlega með því að ofangreind frásögn hennar verði dregin í efa.

„Eins og vanalega þá veit ég að ég verð nú sökuð um lygar, og beðin um sönnunargögn sem aldrei verða nógu marktæk. Ég verð sjálf sögð vera vandmálið. Ég stundi ógnarstjórn og gangi um með aftökulista. Skelli jafnvel hurðum, svo fast að starfsfólk Eflingar óttist mig og þurfi sérstaka vernd. Það mun ekki skipta neinu þótt ég hafi tilkynnt um málið til lögreglu. Það mun ekki skipta máli þótt að starfsmenn á vinnustaðnum viti af og hafi rætt sín á milli um þessa uppákomu. Þeir munu eflaust ekki kannast lengur við neitt.“

Varðandi fund sem hún átti með starfsmönnum skrifstofu Eflingar á föstudag þar sem hún óskaði eftir að ályktun trúnaðarmanna yrði dregin til baka hafi þar verið starfsmenn sem voru meðvitaðir um þær hótanir sem starfsmaðurinn sem greint er frá að ofan hafi gert í hennar garð.

„Í salnum sat starfsmaðurinn, sem sjálfur varð vitni að ofbeldishótunum í minn garð frá þessum samstarfsmanni okkar, og sem hefur sagt frá uppákomunni við nokkra aðra starfsmenn. Í salnum sátu einnig fleiri úr hópi þeirra sem hafa fengið vitneskju um hótunina, til dæmis trúnaðarmaður vinnustaðarins, sá sami og gengið hefur harðast fram í glórulausum ásökunum gegn mér og kröfum um að vinnustaðafundum verði snúið upp í réttarhöld yfir „glæpum“ mínum.“

Veltir Sólveig því fyrir sér hvort einhver starfsmanna skrifstofunnar hafi vakið máls á ofbeldishótununum eftir að hún vék af fundinum.

„Ég hef tekið mína ákvörðun og við hana stend ég. Ég er ekki hlaupast undan merkjum. Ég er einungis að viðurkenna fyrir sjálfri mér og öðrum hverjar takmarkanir mínar sem manneskju eru, þegar fólk sem ég þarf að geta treyst hefur lýst sig reiðubúið að svipta mig ærunni opinberlega en stendur þögult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi fyrir framan augun á þeim.

Ég legg til að við, undirokað fólk af stétt verka- og láglaunafólks, stöndum saman. Ég hvet til þess að við áttum okkur á því að heimurinn sem við lifum í er skakkur, viðsnúinn, bjagaður. Í þessari skekkju hallar alltaf á okkur. Að átta sig á því er fyrsta skrefið. Svo fikrum við okkur áfram saman, eitt skref í einu, stöppum stálinu hvert í annað, vinnum fyrst lítinn sigur, svo annan lítinn og svo stóran. Óhjákvæmilega getum við þurft að stíga skref til baka líka – það er erfitt – en við getum barist áfram og gert þennan skakka heim réttan.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“