fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Ernst & Young í Bandaríkjunum velur Guðmund Fertram Sigurjónsson frumkvöðul ársins

Bjarki Sigurðsson
Föstudaginn 6. ágúst 2021 16:41

Guðmund Fertram Sigurjónsson mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ernst & Young í Bandaríkjunum hefur tilnefnt Guðmund Fertram Sigurjónsson, forstjóra Kerecis, frumkvöðul ársins 2021. Verðlaunin eru á meðal þeirra stærstu sem í boði eru fyrir frumkvöðlastörf og eru þau viðurkenning til framúrskarandi frumkvöðla fyrir leiðtogahæfni, árangur í rekstri, samfélagsábyrgð og uppbyggingu fyrirtækja. Guðmundur Fertram var valinn af óháðri nefnd sem tilkynnti niðurstöðuna í vikunni sem er að líða.

„Verðlaunin eru viðurkenning á tækninni okkar og hversu vel hún nýtist alvarlega slösuðum og þeim sem þjást af þrálátum sárum,“ segir Guðmundur. „Ég er afskaplega þakklátur þeim sem slógust í hópinn við stofnun fyrirtækisins, vísindaráðinu okkar, fjárfestum, Fanneyju eiginkonu minni og öllum í Kerecis – heiðurinn er auðvitað þeirra allra! Þetta er frábær dagur fyrir Kerecis og þær þúsundir sjúklinga sem verið er að meðhöndla um allan heim með sáraroðinu í dag.“

Undanfarin 35 ár hefur Ernst & Young heiðrað frumkvöðla sem hafa sýnt fram á metnað, kjark og hugvitssemi sem skilar sér í góðum árangri fyrirtækja og hafa víðtæk og jákvæð áhrif á iðnað og umhverfi.

Með tilnefningunni verður Guðmundur Fertram meðlimur hóps virtra frumkvöðla sem hafa unnið til verðlauna Ernst & Young.

Kerecis er brautryðjandi í framleiðslu á lækningavörum úr þorskroði og fitusýrum sem verja líkamsvefi og græða. Vörur fyrirtækisins eru framleiddar á Ísafirði, vöruþróun fer fram í Reykjavík og sölu- og markaðsstarf á Washington D.C. svæðinu í Bandaríkjunum og í Sviss

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald