fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Jón Rúnar dæmdur í fangelsi – Sagði að um ástarsamband hafi verið að ræða – Með metamfetamín við Árbæjarkirkju

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 13. janúar 2021 20:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjátíu og níu ára gamall maður, Jón Rúnar Pétursson, hefur verið dæmdur í 21 mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Jón Rúnar henti konu fram af svölunum í íbúðinni sinni sem staðsett er á annarri hæð í Hólahverfinu í Breiðholti þann 16. september árið 2019. RÚV greindi frá dómnum í síðustu viku en nú hefur Mbl.is birt dóminn.

Greint var frá málinu í dagbók lögreglu á sínum tíma en lögregla kom á vettvang og handtók Jón Rúnar. Var hann úrskurðaður í mánaðarlangt gæsluvarðhald. Hann var á skilorði er atvikið átti sér stað. Jón Rúnar er vélfræðingur að mennt.

Konan slasaðist alvarlega en í dómnum kemur fram að hún hafi hlotið heilahristing, blæðingar og bólgur undir húð í andliti ásamt skurðum yfir kjálka vinstra megin, brot á tveimur stöðum í neðri kjálka, brot í kinnholu í efri kjálka, brotnar tennur og brot á mjaðmabeini.

„Eina sem ég man er það að það er tekið svona í mig, þú veist og fúff“

Í dómnum er vísað í skýrslu sem tekin var af konunni, viku eftir að henni var hent fram af svölunum. „Hún kvaðst hafa verið í heimsókn hjá ákærða. Þau hefðu líklega verið eitthvað að rífast en allt í einu hafi ákærði hent henni fram af svölunum. Hafnaði hún því alfarið að hafa hoppað niður og kvaðst þess viss því þá hefði hún lent betur,“ segir í dómnum en Jón hafði haldið því fram að hún hafi hoppað sjálf fram af.

Þá kemur fram í dómnum að Jón hafi sagt í skýrslutöku að hann og konan hafi átt í ástarsambandi. Jón Rúnar vildi meina að hún hefði ráðist á hann með hníf eða barefli eftir að hann sagðist vilja slíta sambandinu. Konan sagði sjálf í skýrslutöku að hennar minning um málið væri ekki eins, hún sagðist ekki muna eftir því að hafa ráðist á hann.

Hún sagði að Jón hafi tekið í sig og ýtt henni fram af svölunum. „Eina sem ég man er það að það er tekið svona í mig, þú veist og fúff,“ sagði konan.

Konan fór fram á um 7 og hálfa milljón í bætur frá Jóni, hún sagðist krefjast 5 milljóna í miskabætur og 2 og hálfa milljón í skaðabætur vegna tannviðgerða. Jón var að lokum dæmdur til að greiða henni 3,7 milljónir.

Með metamfetamín við Árbæjarkirkju

Þá var Jón Rúnar einnig ákærður fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann ók þungu bifhjóli í maí árið 2019 en þá var búið að svipta hann ökurétti, auk þess sem hann var undir áhrifum ávana- og fíkniefna þegar lögreglan stöðvaði hann.  Jón Rúnar var einnig ákærður fyrir að hafa haft 12,59 grömm af metamfetamíni í vörslu sinni þegar lögreglumenn leituðu á honum á bílastæði við Árbæjarkirkju.

Jón Rúnar játaði umferðar- og fíkniefnalagabrotin og var einnig sakfelldur fyrir þau.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips

Viðbúnaður vegna vélarvana flutningaskips
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband

Bretar vilja láta Úkraínu fá nýtt ofurvopn – Myndband
Fréttir
Í gær

Rúmlega 100 sýnendur taka þátt á Verk og vit

Rúmlega 100 sýnendur taka þátt á Verk og vit
Fréttir
Í gær

Umboðsmaður barna á móti frumvarpi um hækkun kynferðislegs lágmarksaldurs – Ekkert samráð við börnin sjálf

Umboðsmaður barna á móti frumvarpi um hækkun kynferðislegs lágmarksaldurs – Ekkert samráð við börnin sjálf