fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Dæmdur fyrir stórfellt dópsmygl en vinnur fyrir borgina

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 12. júlí 2020 18:00

Ráðhús Reykjavíkur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einstaklingar sem hafa verið sakfelldir fyrir stórfelld fíkniefnabrot eru ekki útilokaðir frá þátttöku í útboðum á vegum Reykjavíkurborgar. Einu gildir þó að viðkomandi einstaklingur bíði afplánunar.

Í júlí á síðasta ári ákvað umhverfis og skipulagssvið Reykjavíkurborgar að ganga að tilboði Þakafls ehf. í viðhald og endurbætur á þaki leikskólans Lyngheima. Þann 4. mars sl. var síðan samþykkt að ganga að tilboði HIH málunar ehf. í málun á sex fasteignum á vegum Reykjavíkurborgar. Tilboðið var upp á tæpar 6,5 milljónir króna. Þá var samþykkt annað tilboð frá HIG málun ehf, upp á tæpar 11 milljónir, fyrir málun á tólf öðrum fasteignum í borginni.

Mikið magn sterkra fíkniefna

Skráður stjórnarmaður og helmingseigandi í bæði HIH málun ehf. og Þakafli ehf. er Tómas Arnarson. Í júní á seinasta ári var Tómas dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir hlutdeild í umfangsmiklu fíkniefnasmygli frá Hollandi til Íslands. Þá hefur hann frá árinu 2011 hlotið sex óskilorðsbundna fangelsisdóma fyrir umferðarlagabrot.

Forsaga málsins er sú að árið 2017 var Tómas, ásamt öðrum manni, ákærður fyrir að hafa staðið að innflutningi á rúmum þremur kílóum af MDMA. Efnunum var komið fyrir í sófa sem keyptur var í bænum Oosterhout í Hollandi í júní árið 2015 og síðan fluttur til landsins með flutningaskipi. Lögreglan fann efnin í sófanum á vöruhóteli Eimskipa daginn eftir og lagði hald á þau.

Maðurinn sem ákærður var ásamt Tómasi játaði fyrir héraðsdómi Reykjavíkur að hafa skipulagt innflutninginn og var því sakfelldur. Hlaut hann fimm ára fangelsisdóm. Héraðsdómur sýknaði hins vegar Tómas, en hann neitaði ávallt sök í málinu. Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem síðan sneri við dómi Héraðsdóms, í júní á seinasta ári. Í dómi Landsréttar kemur meðal annars fram að skýringar Tómasar á atriðum sem tengdu hann við kaupin á sófanum hafi verið „ónákvæmar og um margt misvísandi og ótrúverðugar.“ Þá hafi sú afstaða hans að nefna ekki nöfn annarra sem hann hitti og eyddi tíma með í þessum tveimur ferðum dregið úr trúverðugleika framburðar hans. Hann var lokum dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir sinn hlut í málinu. Við ákvörðun refsingar var tekið mið af því að hann var fundinn sekur um að hafa staðið að innflutningi á miklu magni af sterkum fíkniefnum.

Ákveðin brot undanskilin

Eyþóra Kristín Geirsdóttir er lögmaður hjá embætti borgarlögmanns. Í skriflegu svari við fyrirspurn DV stendur:

„Í innkaupareglum Reykjavíkurborgar er hvergi mælt fyrir um skyldu til að hafna tilboði sem stafar frá bjóðanda, hvers stjórnarmenn eða eigendur hafa hlotið dóma fyrir fíkniefnainnflutning eða umferðarlagabrot. Það væri því ekki andstætt innkaupareglum að samþykkja tilboð frá fyrirtæki í eigu einstaklings sem hefði hlotið dóm fyrir fíkniefnainnflutning og/ eða umferðarlagabrot.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans