fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Sakar Guðmund um að endurvekja gamlar samsæriskenningar um Guðna

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 4. júní 2020 19:25

Kristinn Karl t.v. og Guðmundur Franklín t.h.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Karl Brynjarsson, 2. varaformaður verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, ræðir meintar samsæriskenningar Guðmundar Franklíns, forsetaframbjóðanda, og annara andstæðinga þriðja orkupakkans. Um þetta skrifar Kristinn í pistli sem birtist á Fréttablaðinu í dag.

Kristinn segir að andstæðingar orkupakkans hafi búið til samsæriskenningu er varðar Guðna Th. Jóhannesson, sitjandi forseta. Meint samsæriskenning gengur út á að einstaklingar sem myndu græða á orkupakkanum hafi verið þeir sem fjármögnuðu framboð hans. Hann segir að nú hafi Guðmundur Franklín endurvakið þessar samsæriskenningar.

„Þegar umræður um þriðja orkupakkann stóðu sem hæst fyrir ári síðan, smíðuðu andstæðingar hans þar með talinn mótframbjóðandi Guðna Th., samsæriskenningu sem gekk á það að ákveðnir aðilar sem “myndu græða” á samþykkt orkupakkans hafi “keypt” forsetaembættið fyrir Guðna með því að styrkja framboðið fjárhagslega svo ekki yrði bras við að koma orkupakkanum í gegnum þing og forseta.

Nú hefur mótframbjóðandi Guðna ákveðið að endurræsa þessa samsæriskenningu með þeim rökum að fjórði orkupakkinn sé bara alveg við það að detta í umræður í þinginu. Fjórði orkupakkinn er þó ekki nær okkur í tíma en það, að það er allt eins líklegt að hann komi ekki til afgreiðslu í þinginu fyrr en eftir þarnæstu þingkosningar árið 2025.“

Kristinn ræðir þá um Gunnar Braga Sveinsson, núverandi þingmann Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra og seinna sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra. Hann segir að Gunnar hafi í raun gert orkupakka 3 tilbúin, þó að hann hafi seinna barist hart á móti honum.

„Um það leyti sem sagt er að áðurnefnt plott með það að koma Guðna í forsetastól svo ekki yrðu vandræði með að koma þriðja orkupakkanum í gegnum þingið, ritaði þáverandi utanríkisráðherra sem stýrt hafði innleiðingarferli þriðja orkupakkans af miklum myndarskap eftirfarandi í árlega skýrslu sína til þingsins:

„Samningaviðræður EFTA-ríkjanna og ESB hafa staðið yfir í nokkur ár, meðal annars um aðkomu EES-/EFTA-ríkjanna að stofnuninni, og hefur utanríkismálanefnd Alþingis reglulega verið upplýst um málið. Tveggja stoða lausn fyrir ACER er sem fyrr ásteytingarsteinninn, þ.e. hvernig fari um lagalega bindandi ákvarðanir sem ACER getur tekið gagnvart aðildarríkjum ESB þegar um er að ræða mál sem snúa að EFTA-ríkjunum. Hugmyndir eru nú uppi um að útfæra tveggja stoða lausnina á svipaðan hátt og gert er varðandi aðlögun löggjafar á sviði fjármálaeftirlits fyrir EFTA-ríkin, þar sem gert er ráð fyrir þátttöku Eftirlitsstofnunar EFTA varðandi EFTA-stoðina. Vonir standa til að slík útfærsla myndi greiða fyrir lausn málsins svo taka megi þriðja löggjafarpakka ESB fyrir innri orkumarkaðinn upp í EES-samninginn. „

Nokkrum vikum síðar leystist úr þessu ágreiningsefni sem greint er frá og rúmu ári síðar staðfesti sameiginlega EES-nefndin upptöku þriðja orkupakkans í IV. viðauka EES-samningsins. Þá var reyndar téður utanríkisráðherra hættur sem utanríkisráðherra, útafsottlu sem byrjar á “P” og nýbyrjaður sem sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra.

Það muna nú eflaust einhverjir var utanríkisráðherra í mars 2016. Ef ekki þá er herra Google vís með að visa mönnum á rétt svar. En þá var þriðji orkupakkinn bara á fínum stað í ferlinu og nánast klappaður og klár. Þökk sé téðum utanríkisráðherra!“

Að lokum segir Kristinn að umræddar samsæriskenningar séu ansi fjarri raunveruleikanum. Þá grínast hann með að George Soros sé kannski á bak við allt heila klabbið, en auðkýfingurinn hefur gjarnan verið bendlaður við hinar ýmsu samsæriskenningar.

„Að ofansögðu, er það alveg ljóst að téðar samsæriskenningar eiga sér í besta falli afarhæpna stoð í raunveruleikanum. Þær eru í raun ekkert annað en örvæntingarfull viðbrögð manna sem villst hafa af vegi málefnalegrar umræðu og þvælast nú um á holóttum og hlykkjóttum vegi upploginna saka og rógburðar.

En kannski græjaði George Soros bara framboð Guðna Th. til þess að tryggja það að Sigmundur Davíð yrði aldrei aftur forsætisráðherra? Hver veit?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fréttir
Í gær

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”