Reykjavík beinir þeim tilmælum til Borgarbúa að henda ekki sóttvarnargrímum og eldhúspappír í bláu tunnurnar. Þessi úrgangur eigi heima í gráu tunnunum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.
„Snýtubréf og maskar eiga heima í lokuðum pokum með blönduðu heimilissorpi en ekki með pappírsúrgangi. Latexhanska og eldhúsbréf sem hafa verið notuð við þrif eða sótthreinsun skal sömuleiðis setja með blönduðum úrgangi í gráu tunnurnar“
Allt efni sem hugsanlega er sóttmengað verður að setja í gráa tunnu og mikilvægt er að halda áfram góðri flokkun alls úrgangs og að nýta pláss í ílátum við heimili en mikil aukning hefur verið á magni heimilissorps að undanförnu.
„Íbúar eru beðnir um að fylgja þessum tilmælum til að koma í veg fyrir að starfsfólk við sorphirðu smitist og til að draga úr líkum á að sorphirða í borginni raskist.“