fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Vilhelm segir Bjarna og Katrínu álíka hættuleg landsmönnum og veiran alræmda – „Fólk þarf að mæta afleiðingunum”

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 27. febrúar 2020 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhelm Jónsson fjárfestir gefur ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar og Katrínar Jakobsdóttur einn á lúðurinn í aðsendri grein sem birtist á Vísi. Hann segir það þeim að kenna að Ísland sé gífurlega illa undirbúið til að takast á við Covid19-veiruna alræmdu. Hann segir þau raunar hættulegri landsmönnum en veiran sjálf.

Hann segir ekki hægt að ætlast til þess að þetta reddist hvað varðar veiruna. „Ábyrgðarleysið og þröngsýni yfirstjórnar heilbrigðiskerfisins með sóttvarnalæknir í fararbroddi verða ef að líkum lætur fljót að sótthreinsa sig af allri ábyrgð ef illa fer.  Máttleysisleg viðbrögð heilbrigðisyfirvalda eru óásættanleg, ekki síst þegar litið er til hvernig aðrar þjóðir bregðast við þessum illvíga sjúkdómi,“ segir Vilhelm.

Fjársjúku fólki smalað í gáma

Hann segir að viðbrögð sóttvarnarlæknis séu síst skárri. „Viðbrögð sóttvarnalæknis einkennast af því að skoða, sjá til og gera ekki nokkurn skapaðan hlut annað en að ætla að treysta á að hver og einn sjái um eigið sóttkví og voni það besta. Eina sem sóttvarnalæknir hefur haft fram að færa er að upplýsa þjóðina að haldnir séu reglulega stöðufundir og almenningur eigi að þvo sér vel um hendurnar,“ segir Vilhelm.

Hann segir að áætlanir um að smala sýktu fólki í gám sé til skammar. „Það verður nógu erfitt fyrir þá sem smitast að takast á við sóttkví þó svo að niðurbrotið og fársjúkt fólk verði ekki smalað eins og dýrum í 40 feta gám áður en tekist er á við einangrun og frekari erfiðleika eða þaðan af verra. Upplýsingaflæðið er mjög takmarkað, óábyrgt og í anda þess hvernig er komið fyrir heilbrigðiskerfinu,“ segir Vilhelm.

Þrátt fyrir nægan tíma þá hefur ekki verið fundið betra húsnæði. „Stjórnsýslan og læknaembættið hafa haft nægan tíma til að finna boðlegt bráðabirgðahúsnæði til að takast á við sóttvarnir og aðstoða fársjúkt fólk. Gámaskrifli hefðu átt að vera neyðarkostur en ekki fyrsti kostur ef allt færi úr böndunum, sem verulega líkur eru á.  Það er ekki eins og það hefði verið sóun á fjármunum að koma upp bráðaspítala ef allt færi á besta veg. Það hefði þá mátt nýta húsakynnin næstu árin meðan beðið væri eftir að skrípaleiknum við Hringbraut lyki, fyrir þá sem trúa að svo verði,“ segir Vilhelm.

Munu mæta afleiðingum gjörða sinna

Hann segir þessa hegðun loða við íslenska heilbrigðiskerfið. „Það virðist loða við yfirstjórn heilbrigðismála að telja að þetta bara reddist í stað að ráðist sé með markvissum hætti í forvarnir og tekið sé með vitrænum hætti á aðstöðuleysi til sóttvarna og lækninga. Það er eflaust auðvelt að gagnrýna, engu að síður ef illa fer þá bendir flest til að hvert einasta orð eigi rétt á sér.  Það er óforsvaranlegt hvernig haldið hefur verið á málum og er í þeim anda sem loðir við Ísland og heitir ábyrgðarleysi.  Það sem verra er að landsmönnum stendur lítið minni hætta af óábyrgum stjórnvöldum við Austurvöll en af svokallaðri Covid19-kórónaveiru, sem tröllríður heimsbyggðinni,“ segir Vilhelm.

Hann segir að lokum að þetta fólk allt saman muni þurfa að mæta afleiðingum gjörða sinna: „Þröngsýni sem á sér stað að hefta ekki útbreiðslu Covid19-veiru með markvissari hætti á væntanlega eftir að verða mörgum dýrkeypt og enginn mun axla ábyrgð þó svo að mistök eigi eftir að verða augljós. Á sama tíma og verið er að hefta út um allan heim að fólk komi frá sýktum svæðum, og er umsvifalaust sett í sóttkví, viðhefur sóttvarnalæknir ábyrgðarlaust hjal og enginn segir neitt. Landlæknisembættið hefur væntanlega skráp og samvisku til að takast á við gerðir sínar og framtaksleysi þegar fólk þarf að mæta afleiðingunum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala