„Dóttir mín var að koma heim úr skólanum og er byrjuð að fá útbrot og áblástur útaf grímu notkun sama er að gerast með tvær vinkonur hennar, er virkilega þörf á að kvelja börnin svona?“
Þetta skrifar Margrét Friðriksdóttir frumkvöðlafræðingur á Facebook-síðu sína í dag en Margrét veitti DV góðfúslegt leyfi til að birta færsluna. „Það virðist einhver óþverri í þessum grímum,“ segir Margrét í samtali við DV um málið. „etta eru þessar bláu einnota sem þær fá gefins í skólnanum,“ segir hún síðan um grímurnar.
Í athugasemdum undir færslu Margrétar deila margir sömu áhyggjum og hún. „Það er betra að fá bara kóvid held ég. Mig klæjar svakalega í nefið undan glímunni. Held það séu eiturefni í þessu drasli. Kannski bara best að sauma grímuna,“ segir ein kona í athugasemd undir færslunni. „Það er víst Teflon í grímunum. Teflon hefur verið talið krabbameinsvaldandi,“ segir konan síðan áfram. „Ég fæ sting í lungun þegar ég er með þessar einnota, eitthvað eitur í þessu,“ segir Margrét þá.
Þrátt fyrir áhyggjur Margrétar og þeirra sem taka undir með henni er skýrt tekið á um grímuskyldu í þeim takmörkunum sem enn eru í gildi vegna kórónuveirunnar. „Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigubifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, auk þess í menningarstarfsemi, starfsemi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi,“ segir í upplýsingum um grímuskylduna á covid.is.
„Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Undanþegnir grímuskyldu eru þeir einstaklingar sem fengið hafa Covid-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsufars.“