„Þetta er skelfilegt allt og hörmulegir atburðir. Þetta snertir beint mjög marga af starfsmönnum sveitarfélagsins og auðvitað íbúanna hér,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Selfossi, um eldsvoðann á Kirkjuveginum.
Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan fjögur síðdegis í gær vegna mikils elds í einbýlishúsi. Tveir létust í brunanum en rökstuddur grunur er um að upptök eldsins hafi verið af mannavöldum.
Gísli Halldór segir í samtali við Morgunblaðið að hann finni það vel hjá sínu starfsfólki hversu slegið það er. „Þegar fjórar manneskjur tengjast málinu og tvær farast með svona hörmulegum hætti, þá hefur þetta auðvitað djúp áhrif á samfélagið,“ segir Gísli.
Lögreglan hefur tekið skýrslu af öðrum þeirra sem er í haldi vegna brunans og standa nú skýrslutökur yfir hinum aðilanum. Búið er að flytja líkamsleifar þeirra sem létust í brunanum af vettvangi og bíða þær nú krufningar.
„Ég ætlaði að stappa í hann stálinu“
Morgunblaðið ræddi einnig við Kjartan Björnsson rakara, en hann kom fljótt á vettvang í eldsvoðanum. Kjartan er alinn upp á Kirkjuvegi 17, beint á móti húsinu sem í kviknaði, sem eitt sinn hét Sólheimar.
„Eftir að ég heyrði að það væri kviknað í þarna brá mér ansi mikið, vegna þess að æskufélagi minn og bekkjarbróðir býr þarna í húsinu,“ segir Kjartan.
„Ég fór auðvitað á staðinn að athuga með aðstæður og þá náttúrulega var þetta hús í ljósum logum. Það er auðvitað svakalegt og erfitt á að horfa.“
Þá bætir Kjartan við að hann hafi ekki gert sér nægilega grein fyrir þeim aðstæðum sem þarna voru. Hann hafði búist við því að vinur sinn væri einn heima áður en annað kom í ljós. Húsráðandi var handtekinn ásamt konu. Á Vísi er greint frá því að tekin verður ákvörðun um það í kvöld hvort óskað verður eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir húsráðanda og konunni sem var gestkomandi.
„Ég náði aðeins að ræða við hann en svo kom lögreglan og vék mér frá. Þá snerist þetta um einhvers konar rannsóknarhagsmuni, en ég ætlaði að stappa í hann stálinu,“ segir Kjartan.
„Þegar aðstæður eru eins og var hjá þessu fólki, er þetta óskaplega flókið og erfitt. Það tekur á að hugsa um það. Þannig er það bara.“