fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Ársæll var með sýfilis: „Ég er að sýna ábyrgð og skammast mín ekkert fyrir fjöldann“

Ársæll Hjálmarsson greindist með eitt alvarlegasta tilvik sárasóttar sem sést hefur á Íslandi í seinni tíð.

Hjálmar Friðriksson
Föstudaginn 9. júní 2017 14:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ársæll Hjálmarsson var nýverið greindur með eitt alvarlegasta tilvik sýfilis eða sárasóttar sem sést hefur á Íslandi í seinni tíð. Ársæll stígur fram í viðtali við Gayiceland.is til þess að enginn annar þurfi að ganga í gegnum það sama og hann.

„Ég vil ekki að neinn annar lendi í þessu. Það er ástæðan fyrir því að ég tala svo opinskátt um þetta. Ungir hommar eru kærulausir og þeir halda að það sé í lagi að stunda óvarið kynlífi ef hinn aðilinn segist vera á PrEP eða hafi farið í tékk í síðasta mánuði. Svo er ekki, því PrEP virkar bara gegn HIV en ekki öðrum sjúkdómum. Ég vissi það sjálfur en stundaði samt óvarið kynlíf,“ segir Ársæll.

DV hefur áður greint frá að sýfilisfaraldur sé nú meðal íslenskra homma. Í fyrra smituðust tæplega 90 manns af lekanda og ríflega 30 af sýfilis, eða sárasótt. Þetta er mikil aukning miðað við síðustu ár og nærri tvisvar sinnum fleiri smit en árið 2015.

Ársæll segist hafa nýverið farið til læknis vegna sjóntruflana og þá hafi komið ljós að hann væri smitaður af sýfilis. „Ég spurði lækninn nýlega hvort það væri rétt að ég væri með eitt versta tilvikið sem þeir hafa séð. Hún sagði það rétt því þau hafa aldrei áður lent í því að einhver leitar til augnlæknis og greinist með sárásóttarsýkingu í taugakerfinu,“ segir Ársæll. Hann segir að sýkingin hefði getað haft alvarleg áhrif á sig síðar meir, hann hefði meðal annars orðið geðveikur.

Ársæll segir að það fyrst sem hann hugsaði um þegar hann greindist með sýfilis hafi verið að taka ábyrgð. Í stöðufærslu á Facebook segist hann hafa sent skilaboð til þeirra sem hann hefur stundað kynlíf með síðustu 12 mánuði.

„Listinn er ekki langur, aðeins 311 manns!!! Nei ég er að djóka. Aðeins 6 á listanum af þeim sem ég hef náð til. (Líklega er heildar talan í kringum 12-25 með útlendingum sem ég hef enga hugmynd um hvar eru). Ég er að sýna ábyrgð og skammast mín ekkert fyrir fjöldann. Veit bara að ég hef náð til fólks sem hefur bókað sig í tékk,“ skrifar Ársæll.

Hér má lesa viðtalið í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald