fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Jón Baldvin leggst gegn ESB-aðild: „Við göngum ekki inn í brennandi hús núna“

Segir Evrópusambandið nánast vera í sjálfsmorðsleiðangri

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 7. mars 2016 13:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að hagsmunum Íslands sé í dag betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess. Þetta kom fram í máli Jóns Baldvins á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.

Jón var harður talsmaður þess eftir hrun að Ísland gengi í Evrópusambandið, en hann hefur nú endurskoðað afstöðu sína til þess. „Við göngum ekki inn í brennandi hús núna. Slökkvið fyrst eldana,“ sagði Jón Baldvin meðal annars.

„Hér talar maður sem var harvítugasti talsmaður þess að við eftir hrun gengjum í samfélag lýðræðisríkja, Evrópusambandið. Ég hef endurskoðað þá afstöðu. Einfaldlega vegna þess að þegar ég horfi á Evrópu, þá sé ég Evrópusamband sem er nánast í sjálfsmorðsleiðangri vegna þess að pólitíska forystan hefur algjörlega brugðist – og það er kreppa eftir kreppu eftir kreppu. Peningasamstarfið er byggt á röngum grunni og stenst ekki. Það mun ekki standast nýtt áhlaup,“ sagði Jón Baldvin og bætti við að stefna Evrópusambandsins gegn þeim ríkjum sem fóru hvað verst út úr hruninu; Grikklandi, Kýpur, írlandi, Spáni og Portúgal væri rugl.

„Tómt efnahagslegt rugl! Og ekki boðleg. Frammistaða Evrópusambandsins gagnvart þeirri áraun sem fylgja flóttamannahræringum um allan heim sýnir algjört pólitískt forystuleysi, alltaf viðbrögð við atburðum eftir á, og skammarlega lítilmennsku.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök

Allir sakborningar í Gufunesmálinu neita sök
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald