fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Málalok reimleikanna í Brúnshúsi – Fógetinn skerst í leikinn

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 12. maí 2019 16:12

Reykjavík Tíminn 6. janúar 1990.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku fjallaði tímavél DV um Sigvardt Bruun, fangavörð í tukthúsinu við Arnarhól undir lok 18. aldar. Óþokka sem margar þjóðsögur spunnust um, þar á meðal undarlegan dauðdaga hans eftir spark frá hesti. Ekkja hans, Christine, keypti beykihús við Tjarnargötu 4 sem var nefnt Brúnshús en það var rifið í kringum árið 1830. Brúnshús var vettvangur eins þekktasta reimleikamáls í sögu Reykjavíkur, hið svokallaða draugsmál Sigurðar Breiðfjörð.

 

Þetta er er brot úr umfjöllun Tímavélar DV í helgarblaðinu.

 

Skríðandi ófreskja

Næsta dag gerðist ekkert en Pétur var var um sig. Þegar rökkvaði var hann orðinn mjög hræddur, sérstaklega eftir að Guðmundur böðull mætti honum og sagðist hafa séð vofu fyrir utan húsið. „Sagðist hún vera send til þín og eiga að drepa þig,“ sagði Guðmundur við Pétur. Varð Pétur svo hræddur við að heyra þetta að hann bað þá þrjá, Guðmund, Sigurð og Hannes, og einnig Kristján Jakobsson verslunarmann, að vera inni hjá honum um kvöldið. Kveikti hann á tveimur kertum, tók Passíusálmana sér í hönd og byrjaði að syngja. Kristján var þá úti að aðgæta í kringum húsið. En þá kom högg á hurðina.

Pétur var brattur með svo marga inni hjá sér, tók byssuna og barði með skaftinu á móti. Hann hrópaði á drauginn að hypja sig norður og niður. Skömmu síðar kom Kristján inn og sagðist hafa séð ófreskju skríða frá húsinu og í átt að ullarstofu þar rétt hjá. En síðan byrjaði hamagangurinn aftur og barði draugurinn bæði á hurð og glugga. Héldu barsmíðarnar áfram fram eftir kvöldi uns Sigurður steig upp og rak drauginn burtu. Svaf Pétur heldur ekki þá nóttina.

Draugur að austan
Vildi drepa Pétur beyki.

Galdrastafir úr blóði

Um morguninn komu þeir allir saman og sagði Sigurður að augljóst væri að draugurinn ætlaði að drepa einhvern þeirra. Það kvöld héldu reimleikarnir áfram og var barið svo hart á hurðina að hún opnaðist hvað eftir annað, hlutir hrundu úr hillum og húsið allt skalf. Sigurður og Hannes voru stoð og stytta Péturs og voru inni hjá honum. Mitt á milli ásóknanna sögðu þeir draugasögur sem gerðu Pétur enn þá hræddari. Grátbað hann Sigurð um að kveða niður drauginn.

„Það má vera að ég reyni það, ef ég fæ einn pott af brennivíni,“ svaraði Sigurður. Var það gert og settust þeir við drykkju.

Sigurður sagði að það væri ekki auðvelt að kveða niður drauga og að hann óttaðist afleiðingarnar. Hann myndi þó reyna að frelsa félaga sína því honum þætti vænt um þá. Skar hann í sig og notaði blóðið til að skrifa nokkra galdrastafi. Síðan gengu hann og Hannes fram í eldhús en Kristján var hjá Pétri.

Heyrðust nú hljóð úr eldhúsinu líkt og flogist væri þar á. Þá heyra þeir Sigurð spyrja:

„Hvaðan ertu?“

Og svarað:

„Að austan.“

Sigurður spyr aftur:

„Hvern ætlarðu að finna?“

Draugurinn svaraði þá:

„Pétur beyki.“

Í þriðja skiptið spyr Sigurður:

„Hvað viltu honum?“

Og draugur svarar:

„Ég á að drepa hann.“

Fór Sigurður þá með þulu og skipaði draugnum að mæta sér klukkan ellefu. Másandi og blásandi komu Sigurður og Hannes aftur inn í svefnherbergið. Sögðu þeir að draugurinn hefði verið magnaður upp úr hrafnshjarta og hræfuglaskinnum en hefði vit á við mann. Settust þeir aftur við drykkju.

 

Fimm ríkisdalir

Klukkan tíu var hurðinni hrundið upp en enginn sjáanlegur. Sigurður og Hannes fóru út og komu aftur með Guðmund með sér. Voru þeir skrýtnir og leið yfir þá alla. Pétur hljóp til að sækja vatn handa þeim og hresstust þeir þá við.

Klukkan hálf ellefu kom aftur högg á hurðina, en Guðmundur var þá farinn úr herberginu. Pétur gólaði blótsyrði og spýtti í áttina að hurðinni. Þá greip hann Passíusálmana með annarri hendinni og byssuna með hinni. Báðu þeir hann að róa sig en Pétur æpti:

„Haldið þið að ég viti ekki allt um þennan draug og hvernig hann er gerður? Ég heyrði allt sem ykkur fór á milli frammi í eldhúsinu. Ég heyrði sjálfur að draugurinn sagðist vera að austan og ætla að drepa mig. Og hann er frá Jóni í Belgsholti, því honum er illa við mig. Og svo haldið þig að manni standi á sama. Ég skal borga þér fimm ríkisdali, Sigurður, ef þú kveður hann niður fljótt, og áttu ekki skilið að heita kraftaskáld ef þú getur það ekki.“

Þá var hurðinni hrundið upp og inn fleygt staurum, stokkum og öðrum húsmunum. Sigurður og Hannes óðu út í myrkrið en Pétur sat einn eftir, trylltur af angist og ósofinn. Pétur flúði þá inn í svefnherbergi hjá fjölskyldunni sem bjó í Brúnshúsi. Fjölskylduföðurnum, er Sigmundur hét, brá við þetta og stökk á fætur. Skammaði hann Pétur sem hrökklaðist þaðan út.

Þá var barið á gluggana, svo fast að tvær rúður brotnuðu. Fyrir utan heyrðust stimpingar og læti. Pétur leit út og sá Sigurð í áflogum við dökka ófreskju. Sigurður náði að reka hana á brott, síðan komu hann, Guðmundur og Hannes aftur inn í húsið. Var Sigurður örmagna og orðfár.

Þakkaði Pétur honum fyrir og Guðmundi sagðist vera illt á að hlusta á „mergjaðar“ vísur Sigurðar til að kveða drauginn niður. Voru þeir allir svo glaðir að þeir sungu sálma, drukku og Pétur las bæn.

 

Fyrir dóm

Draugurinn kom ekki aftur í Brúnshús en næstu daga tók Pétur eftir því að fólk var að hæðast að honum vegna draugagangsins. Kom loks til hans maður og sagði honum að þetta hefðu allt verið brögð „vina“ hans og hann hefði verið hafður að fífli og féþúfu. Var Pétur eggjaður til þess að láta þetta ekki viðgangast og kæra málið sem hann og gerði.

Þann 3. janúar árið 1824 fór Pétur á fund Sigurðar Thorgrímsen bæjarfógeta og kærði félaga sína fyrir samantekin ráð um að leika á sig og hafa af sér fé og vín. Sagði hann að draugurinn hefði verið Guðmundur böðull.

Fógeta fannst málið spaugilegt en tók það engu að síður til rannsóknar og stefndi aðilum málsins fyrir lögreglurétt þann 12. janúar. Þar talaði Pétur digurbarkalega en hafði engar sannanir fyrir máli sínu. Leysti fógeti málið á þann hátt að Pétur myndi afturkalla kæru sína gegn því að félagar hans legðu til fjögur ríkisbankamörk til fátækrasjóðsins í Reykjavík. Pétur sat hins vegar uppi með málskostnaðinn.

Eftir þetta buðu félagar Péturs honum til drykkju „og drekti hann þar minkunn sinni og gremju svo rækilega að hann var miður sín lengi á eftir.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á