fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024

Svona heldurðu sönsum á meðan þú ert í sóttkví

Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 12. ágúst 2020 18:30

Ætli þessi hafi komið við sögu?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blaðamaður New Yorker birtir hér frábær ráð um hvernig má halda sönsum á meðan maður er í sóttkví.

Fáðu nægan svefn

Sofðu – hvar sem er! Í eða undir rúminu, á sólríkum stað, undir sænginni, við gluggann, öfug/ur, á sófanum, á miðju gólfi, ofan á ísskápnum, í skápnum, á bakinu, í fósturstellingu, í kassa.

Vertu virk/ur

Hrintu bunka af myntum af borðinu til þess að sjá hversu langt þær skoppa og rúlla. Eltu eigin rófu. Breiddu úr þér ofan á góðri bók. Láttu eitthvað bregða þér – bara hvað sem er – og skjóstu út úr herberginu.

Þrífðu þig reglulega

Þrífðu þig bak við eyrun. Og gerðu það svo aftur.

Eigðu samskipti við vini og fjölskyldu

Byrjaðu að æpa á hvern sem getur heyrt í þér klukkan 6 að morgni til, út af engu. Gólaðu á fuglana. Gakktu yfir (eða leggstu ofaná) lyklaborð. Grenjaðu fyrir framan lokaða hurð sem liggur að herbergi sem þú átt hvort sem er ekkert að vera inni í. Bíttu í síma. Orgaðu ofan í matardallinn þinn sem er fullur af mat.

Hafðu jafnvægi í mataræðið

Borðaðu litlar máltíðir, þrisvar til fjórtán sinnum á dag. Hrintu mat á gólfið svona fyrir fjölbreytnina. Settu alla höndina þína ofan í skál fulla af poppi og ákveddu síðan að þig langi ekki í popp. Steldu kalkúnasneið úr samloku sem liggur á glámbekk.

Drekktu nóg vatn

Drekktu nóg af vatni, helst beint úr krananum.

Finndu þér nýtt áhugamál

Feldu öll leikföngin þín undir sófanum. Rífðu niður allan þann pappír sem þú kemst í. Rífðu í sundur sófa herbergisfélaga þíns. Klíndu hárinu þínu á hvern einasta snefil af fatnaði sem þú finnur. Skíttu í box og feldu svo verksummerkin vandlega.

Hugleiddu

Starðu á punkt á veggnum eða í loftinu í sex mínútur.

Mynd úr safni.

Hlýddu Víði

Haltu þig frá mannverum. Hvæstu ef þú þarft þess.

Greinin er þýdd úr ensku af vefmiðlinum New Yorker.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Flýgur til London í kvöld og heldur svo til Bandaríkjanna

Flýgur til London í kvöld og heldur svo til Bandaríkjanna
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Mátti ekki koma til landsins í fjögur ár en endaði í gæsluvarðhaldi

Mátti ekki koma til landsins í fjögur ár en endaði í gæsluvarðhaldi
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Var uppi í sumarbústað þegar hann vann 54 milljónir króna

Var uppi í sumarbústað þegar hann vann 54 milljónir króna
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Skemmdarverkin í Frakklandi: Spjótin farin að beinast að umhverfisverndarsinnum

Skemmdarverkin í Frakklandi: Spjótin farin að beinast að umhverfisverndarsinnum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tekur glæsilegt hús Greenwood á leigu – Borgar tvær og hálfa milljón á mánuði

Tekur glæsilegt hús Greenwood á leigu – Borgar tvær og hálfa milljón á mánuði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti

Slot tjáir sig um hugsanleg félagaskipti
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Eiginkonan gat ekki setið á sér eftir fréttir gærdagsins – „Aflið ykkur betri upplýsinga“

Eiginkonan gat ekki setið á sér eftir fréttir gærdagsins – „Aflið ykkur betri upplýsinga“
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Gréta Karen tók lagið með Ken Jeong

Gréta Karen tók lagið með Ken Jeong

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.