fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025

YouTube-stjarna opinberar leyndarmál sitt eftir hótanir

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 14. janúar 2020 11:26

Nikkie sendi þeim fingurinn sem hafa hótað henni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

YouTube-stjarnan Nikkie de Jager, sem heldur úti vinsælli síðu um allt sem viðkemur fegurð, hefur opinberað leyndarmál sitt eftir að hafa sætt hótunum og kúgunum frá óþekktum netverjum.

Nikkie, sem er með 12,4 milljónir áskrifenda á YouTube og 12,9 milljónir fylgjenda á Instagram, steig fram í myndbandi á YouTube þar sem hún opinberaði í fyrsta skipti að hún væri trans. Ástæðan var sú að óprúttnir einstaklingar höfðu hótað að „afhjúpa“ hana.

„Ég fæddist í röngum líkama,“ segir Nikkie sem gengur undir nafninu NikkieTutorials í netheimum. „Ég er bara ég. Við þurfum ekki að setja einhvern stimpil á mig, en ef fólk vill gera það þá er ég trans,“ segir hún í myndbandinu og bætir við að hún hafi verið sex ára þegar hún fór að láta hárið vaxa og klæða sig í föt sem stúlkur ganga alla jafna í. News.com.au fjallaði um þetta.

Í myndbandinu segir Nikkie að þegar hún var fjórtán ára, um það leyti sem hún stofnaði YouTube-rásina vinsælu, hafi hún byrjað í hormónameðferð. Þegar hún var nítján ára hafi hún svo gengist undir sjálfa kynleiðréttingaraðgerðina.

Nikkie hefur verið hrósað í hástert fyrir að opna sig og segja frá. Sjálf segist Nikkie hafa gert það tilneydd vegna hótana. „Mig hefur alltaf langað að deila þessu með ykkur en ég vildi gera það á mínum forsendum,“ segir hún og bætir við að fólk sem hefur kjark til að vera það sjálft verði oft að skotmarki hugleysingja sem láta hatur ráða för.

„Ég hef sætt kúgunum frá fólki sem vill „leka“ sögunni minni,“ segir hún og bætir við að þessir sömu einstaklingar hafi sakað hana um að ljúga að aðdáendum sínum.

Nikkie hefur átt góðu gengi að fagna á undanförnum árum og unnið með fyrirtækjum á borð við Marc Jacobs. Þá var hún á lista Forbes árið 2017 yfir unga áhrifavalda sem vakið hafa athygli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Besta deildin: Vestri og ÍA töpuðu heima

Besta deildin: Vestri og ÍA töpuðu heima
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Þorsteinn: „Erum komin með bakið upp við vegg“

Þorsteinn: „Erum komin með bakið upp við vegg“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Kyle Walker í Burnley

Kyle Walker í Burnley
EyjanFastir pennar
Fyrir 13 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir

Sigmundur Ernir skrifar: Orrustan um Ísland stendur yfir
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Allir á einu máli um Höllu forseta

Allir á einu máli um Höllu forseta
Eyjan
Fyrir 14 klukkutímum

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni

Orðið á götunni: Málþófið tætir fylgið af Sjálfstæðisflokknum – líka í borginni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.