Dýraathvarfið Morris í borginni Philadelphia í Bandaríkjunum óskar eftir heimili fyrir kattardýr, sem er ekki frásögur færandi nema hvað að myndin sem birtist á Facebook-síðu athvarfsins vakti óvenju mikla athygli á heimsvísu. Að öllum líkindum er þetta vegna þess að umræddur köttur, sem ber heitið Mr. B, vegur um tólf kíló og „endurskilgreinir orðið hlunkur,“ eins og segir í færslunni.
Hermt er að vefsíða athvarfsins hafi hrunið vegna heimsókna. Viðbrögðin létu aldeilis ekki á sér standa og voru margir kattavinir tilbúnir til þess að ættleiða Mr. B og veita honum nýtt heimili. Þykir þá líklegt að þessi mikli högni verði kominn með heimili fyrr en varir.