

Árlegu CFDA tískuverðlaunin voru afhent í New York í gær og var það Raf Simons sem sem var valinn hönnuður ársins. Það var Franca Sozzani fyrrum ritstjóri ítalska Vogue sem var valin tísku „iconið“ en hún lést á síðasta ári, 66 að aldri. Stuart Vevers hjá Coach fékk verðlaunin skartgripahönnuður ársins og Fernando Garcia og Laura Kim fengu Swarovski Award for Emerging Talent fyrir hönnun sína Monse.
Swarovski Award for Positive Change hlaut Kenneth Cole. Geoffrey Beene Lifetime Achievement Award hlaut Rick Owens og Founder’s Award hlaut Pat McGrath. International Award hlaut Demna Gvasalia hjá Vetements and Balenciaga og Board of Directors’ Tribute fengu Cecile Richards, Gloria Steinem og Janelle Monáe.












