fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Secret Solstice fer af stað: Bonnie Tyler grínaðist með botoxið

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 22. júní 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Secret Solstice hátíðin hófst í gær, 21. júní, og eins og fyrri ár þá var fimmtudagsdagskráin stíluð inn á eldri hópa. Áður hafa meðal annars Sister Sledge og Chaka Khan komið fram en nú voru aðalnúmer kvöldsins rokkgoðsagnirnar Jet Black Joe og velska stórstjarnan Bonnie Tyler.

Rétt eins og flesta aðra daga í sumar mígrigndi í Laugardalnum þegar Secret Solstice hátíðin opnaði. Eitthvað var um skipulagshiksta og dæmi um að fólk þyrfti að bíða lengi í röð vegna þessa. Þrátt fyrir raðirnar og rigninguna virtist fólk í bullandi stemningu og greinahöfundi kom það á óvart hversu mannmargt var á svæðinu en fimmtudagurinn er yfirleitt sá fámennasti.

 

Næntís rokk

Klukkan rúmlega níu stigu Jet Black Joe liðar á svið. Tveir eru eftir úr upprunalegu sveitinni sem stofnuð var árið 1991 og var vinsælasta rokkhljómsveit landsins um nokkurra ára skeið og fyrirferðamikil í fjölmiðlum vegna óreglu og láta. Um tíma virtist sem hljómsveitin væri að „meika það“ úti í hinum stóra heimi en eins og flestir vita hætti hljómsveitin árið 1996 og söngvarinn Páll Rósinkranz setti guð í fyrsta sæti. Síðan 2001 hefur hljómsveitin annars lagið komið saman á tónleikum en þá með breyttum mannskap.

Það er auðvelt að sjá af hverju þeir urðu svona stórir, þetta eru grípandi lög sem flestir tónleikagestir gátu sungið með þó þeir væru ekki einu sinni fæddir þegar Páll og Gunnar Bjarni riðu húsum. Páll hefur verið einn besti söngvari landsins í tæpa þrjá áratugi og Júníusbræður slá hrynjandann sem einn maður. „I, You, We“, „I Know“, „Rain“, „Freedom“ og allir þessir slagarar tíunda áratugarins. Vitaskuld biðu áhorfendur allir eftir „Higher and Higher“ sem kom í lokin. Þetta er ekki virkt band, ef segja má svo, heldur sýningargluggi inn í það besta sem tíundi áratugurinn hafði upp á að bjóða og yngri kynslóðin virtist kunna að meta það.

 

Grínaðist með botoxið

Aðalnúmer kvöldsins var ráma rokkdrottningin Bonnie Tyler klukkan hálf ellefu og líkt og með Jet Black Joe þá tók yngri kynslóðin vel í þá arfleið sem hún skilur eftir sig. Það var samt svolítið undarleg tilfinning að heyra skara af tvítugu fólki ópa „Bonnie! Bonnie! Bonnie!“ fyrir tónleikana og rétt áður en hún steig á svið öskraði einn ungur drengur „Bonnie, ég fylgist með þér á Instagram!“.

Bonnie, sem er nýdottin í lífeyrisaldur, átti sinn frægðartíma á áttunda og níunda áratugnum en hefur undanfarin ár sungið með Rod Stewart. Það eru ansi margir viský-pelar í rödd hennar en eitthvað frelsi í fasi hennar sem gerir hana heillandi á sviði. Hún er eins og einhver amma sem má vera vandræðaleg. Bonnie er ekki bara söngkona, hún er skemmtikraftur sem grínast með botoxið sitt og grobbar sig eins og svæsnasti rappari. En hún má það svosum eftir að hafa gefið út smelli eins og „It´s a Heartache“, „Total Eclipse of the Heart“ og lokalag kvöldsins „Holding on for a Hero.“

Þetta var heilt yfir gott kvöld og sérstaklega gaman að sjá að yngri kynslóðin hlustar ekki bara á mumble-rapp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Hitnaði í kolunum í beinni útsendingu – „Þetta kalla ég hrútskýringar“

Hitnaði í kolunum í beinni útsendingu – „Þetta kalla ég hrútskýringar“
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“

Sakleysisleg Facebook-mynd vakti hroll: „Hvar er brosið þitt?“
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Börsungar vilja framherja Chelsea í sumar – Væri mikið áfall í London

Börsungar vilja framherja Chelsea í sumar – Væri mikið áfall í London
Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Óttast mest að þetta leggist á sálina á mönnum fyrir norðan – „Þeir áttu ekkert skilið“

Óttast mest að þetta leggist á sálina á mönnum fyrir norðan – „Þeir áttu ekkert skilið“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hafa tekið það úr skólanum vegna hinseginfræðslu

Foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hafa tekið það úr skólanum vegna hinseginfræðslu