fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Komdu inn úr rigningunni og á tónleika með MUSE

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 4. júlí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bíó Paradís, ásamt fjölda annarra bíóhúsa víðsvegar um heim, sýnir frá tónleikum MUSE – WORLD DRONES TOUR samtímis þann 12. júlí næstkomandi.

Hin heimsþekkta hljómsveit Muse túraði frá 2015-16 og bar tónleikaröðin nafnið ‘Drones World Tour’. Muse spilaði á yfir 130 stöðum víðsvegar um heiminn og var engu til sparað í sviðsumgjörð tónleikanna. Var sviðinu komið fyrir í miðju áhorfendahópsins, þannig skapaðist 360 gráðu hljóma/sjónarspil fyrir áhorfendur. Drónatæknin var nýtt til hins ítrasta í þeim efnum en fljúgandi drónar voru alltumlykjandi sviðið og hljómsveitarmeðlimi sem ásamt LED og laserlýsingu sem skapaði bandinu magnaða umgjörð.

Hljómsveitin flutti öll sín vinsælustu lög á túrnum sem hljóma í myndinni, þar á meðal Psycho, Madness, Uprising, Plug in Baby, Supermassive Black Hole og Knights of Cydonia. Myndin fangar bestu augnablik heimstúrs Muse. The New York Times lýsti Muse tónleikaupplifuninni sem ,,endalausri uppbyggingu spennu sem nær hápunktinum aftur og aftur.”

Muse valda aðdáendum sínum ekki vonbrigðum í þessari stórkostlegu tónleikamynd frekar en á sviði en bandið er margverðlaunað fyrir lifandi flutning. Muse: Drone World Tour er mögnuð tónleikakvikmynd þar sem hljóð og mynd skapa stórkostlega upplifun sem er best notið á stóra tjaldinu.

Viðburður á Facebook.
Miðasala á Tix.is.

Fylgjast má með MUSE á FacebookTwitter  og Instagram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“