fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Hláturinn og samviskubitið

Dómur um Undir trénu

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 8. september 2017 15:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhugafólk um íslenska kvikmyndagerð hefur beðið eftir Undir trénu, nýjustu mynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, um nokkurt skeið. Hann kom áhorfendum á óvart árið 2011 með Á annan veg sem gerð var fyrir mjög lítið fjármagn. Hún var endurgerð í Bandaríkjunum tveimur árum síðar. París norðursins frá árinu 2014 fékk einnig mikið lof og athygli erlendis. Báðar þessar kvikmyndir dönsuðu á fínni línu gamans og alvöru.

Kramer vs Kramer og Njáls saga

Undir trénu dansar ekki aðeins á línunni heldur tekur stór stökk yfir hana. Myndin er svo fyndin á köflum að fólk skellir upp úr, jafnvel í miðjum atriðum sem ættu annars ekki að vekja kátínu. En síðan koma atriði sem eru svo sorgleg og erfið að maður fær samviskubit yfir því að hafa hlegið að þeim fyndnu. Þetta er tragi-kómedía af ýktustu sort.

Undir trénu er í raun tvær sögur sem tvinnast saman. Önnur fjallar um parið Atla og Agnesi sem standa frammi fyrir skilnaði þegar Agnes telur sig hafa komist að framhjáhaldi Atla. Sambandsslitin eru erfið í ljósi þess að þau eiga saman dóttur á leikskólaaldri.

Hin sagan er deila foreldra Atla við nágranna sína í Hvassaleitinu. Kveikja deilunnar er tré sem stendur í garði þeirra og skyggir á pall grannanna. Fyrir misskilning stigmagnast þessi deila uns ekki verður aftur snúið. Deilan er knúin áfram af konunum á meðan karlarnir kóa með. Hér er því um augljósa tilvísun í Brennu-Njáls sögu og deiluna milli Hallgerðar og Bergþóru.

Edda og Lára hreyfa við manni

Atli er leikinn af Steinþóri Hróari Steinþórssyni (Steinda Jr.) og foreldrar hans, sem hann flytur inn á, eru leiknir af Eddu Björgvinsdóttur og Sigurði Sigurjónssyni. Þetta eru allt saman landsþekktir gamanleikarar sem settir eru í dramatískar aðstæður. Yfir fjölskyldunni hvílir skuggi hvarfs eldri bróður Atla, sem allir vita þó að fyrirfór sér. Þetta leggst sérstaklega þungt á móðurina Ingu sem maður sér strax að er mjög skemmd persóna. Faðirinn Baldvin ber harm sinn í hljóði og hann er sú persóna sem reynir að stilla til friðar í báðum sögum myndarinnar.

Nágrannarnir Konrad og Eybjörg, leiknir af Þorsteini Bachman og Selmu Björnsdóttur, eru nýgiftir og glíma einnig við sín vandamál, það er að reyna að eignast barn þrátt fyrir að vera komin á aldur.

Atli fær flestar mínútur enda er hann lykilpersóna í báðum sögunum. Inga er hins vegar sú persóna sem vekur mesta athygli enda er Edda leikkona sem krefst þess að fólk taki eftir henni. Hún leikur þetta hlutverk af stakri snilld og maður finnur vel til með henni. Jafnframt skilur maður að hún er ekki í jafnvægi og trúandi til alls.

Senuþjófur myndarinnar er hins vegar Agnes sem er leikin snilldarlega af Láru Jóhönnu Jónsdóttur sem hefur ekki verið þekkt fyrir kvikmyndaleik hingað til. Framan af myndinni er hún algerlega stjörf, viðbragð við framhjáhaldi sem virðist algerlega mannlegt en sést þó sjaldan í kvikmyndum. Þegar á líður lemur hún frá sér og Lára leikur það jafn vel og stjarfleikann.

Niðurstaða

Undir trénu snertir á flestum þeim mannlegu tilfinningum sem til eru. Maður hlær, verður sorgmæddur, verður vandræðalegur, fyllist óhug og meira segja ógleði. En bíó af þessu tagi á heldur ekki að vera auðvelt. Maður finnur vel til með flestum persónunum og það var mjög líklega takmarkið allan tímann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum