fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Krimmi í mýkri kantinum

Konan í blokkinni er fyrsta glæpasaga Jónínu Leósdóttur

Kolbrún Bergþórsdóttir
Mánudaginn 25. janúar 2016 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konan í blokkinni er skáldsaga eftir Jónínu Leósdóttur. Bókin kom út í bókaklúbbi Forlagsins í nóvember og í byrjun janúar kom hún í bókaverslanir. Óvenjulegt er að ný íslensk skáldverk komi í verslanir á þessum tíma, um leið og jólabókaflóðinu lýkur.

„Í byrjun hafði ég smá áhyggjur af tímasetningunni en hef þær ekki lengur,“ segir Jónína. „Bókin er bók mánaðarins í Eymundsson og fær fyrir vikið ákveðna athygli, auk þess sem fáar bækur koma út á þessum tíma.“
Hún segist ekki sakna þess að hafa ekki að þessu sinni tekið þátt í hinu árlega jólabókaflóði. „Það var óskaplega gott að fá hlé frá upplestrum. Fyrir rúmu ári, þegar ég sendi frá mér skáldsöguna Bara ef…, þá fór ég fjörtíu og tvisvar út úr húsi til að kynna bókina, lesa upp og fara í viðtöl. Í nóvember og desember hafði ég engan tíma til að skrifa, var alltaf með næsta upplestur í huga. Núna gat ég unnið eins og venjulega þó að jólabókaflóðið væri í gangi. Mér fannst það algjör lúxus.“

Áhugi á mannlegu eðli

Aðalpersóna nýju bókarinnar er Edda sem vann í bókabúð en er komin á eftirlaun. Önnur kona, Steinunn, sem er mun yngri, er í stóru hlutverki í bókinni, en sú vaknar upp við afar óvenjulegar aðstæður. Þetta er fyrsta glæpasaga Jónínu og hún er spurð af hverju hún hafi ákveðið að skrifa glæpasögu.

„Ég hef engan sérstakan áhuga á glæpum en þeim mun meiri áhuga á mannlegu eðli. Af því að fólk er eins og það er þá leiðist það stundum út í glæpi,“ segir hún. „Ég hef einu sinni áður skrifað spennubók. Það var unglingabók sem ég gekk með í tíu ár. Mig langaði til að skrifa bók fyrir ungt fólk sem fjallaði um þunglyndi og sjálfsvígshættu. Ég uppgötvaði loks hvernig ég gæti gert það án þess að foreldrar og afar og ömmur myndu neita að kaupa bókina handa krökkunum og án þess að krakkarnir myndu henda bókinni frá sér. Þetta tókst mér með því að setja bókina í spennuform.“

Aðalpersónan í Konan í blokkinni er Edda, lífleg eldri kona. Það eru ekki margar konur á hennar aldri áberandi í skáldsögum. Af hverju vildirðu skrifa um konu eins og hana?

„Edda er orkumikil og forvitin og leysir gátur en er svolítið afskrifuð út af kennitölunni. Hún varð til í huga mínum áður en ég ákvað að gera bókina að glæpasögu.“

„Týpur sem eru nokkuð líkar Eddu hafa verið í öðrum bókum mínum en þá sem aukapersónur. Mér fannst oft leiðinlegt að sleppa höndunum af þeim og nú langaði mig til að hafa svona persónu í forgrunni.

Ég hef mjög gaman af konum á besta aldri sem eru hressar og kjaftforar, þykjast vita allt og geta allt. Kannski líkar mér svo vel við þær vegna þess að mig langar til að vera svona týpa. Ég er því miður ekkert lík þeim.

Edda er orkumikil og forvitin og leysir gátur en er svolítið afskrifuð út af kennitölunni. Hún varð til í huga mínum áður en ég ákvað að gera bókina að glæpasögu. Smám saman komst ég einfaldlega að því að Eddu hentaði ákveðin spenna. Hún þolir ekki lognmollu og leiðindi, konan. Hún vill hafa fútt í hlutunum. Þetta er þó ekki svæsinn krimmi með miklu blóði og eltingaleik. Þetta er krimmi í mýkri kantinum.“

Einkennileg viðhorf til eldri kvenna

Í bókinni kemur fram að viðhorf til eldri kvenna sé oft nokkuð einkennilegt, það er ekki tekið fullt mark á þeim. Hefur þú sjálf orðið vör við slík viðhorf?

„Áhugi fólks á manni minnkar eftir því sem maður eldist, það held ég að margar konur finni. Þegar ég var í blaðamennsku á Nýju lífi skrifaði ég pistil um viðhorf til eldri kvenna og fékk mikil viðbrögð frá konum sem könnuðust við þetta. Í þessari bók er ýmislegt sem við mig langaði til að fjalla um og þá er gott að hafa konu eins og Eddu sem málpípu.“

Sala á bókum í matvöruverslunum fer mjög í taugarnar á Eddu sem sjálf vann í bókabúð. Fer þessi sala líka í taugarnar á þér?

„Ég hef gríðarlega gaman af að fara í bókabúðir og mér finnst mikil synd þegar matvöruverslanir fleyta rjómann af bóksölunni í desember. Þessar búðir eru þar að auki ekki með allar jólabækurnar til sölu heldur velja bækur úr og það hefur áhrif á söluna. Mér er annt um bókabúðir, sem sinna bókaunnendum allan ársins hring, og vil ekki að matvöruverslanir gleypi bókasöluna fyrir jólin og skekki markaðinn. Á móti kemur að margir kaupa kiljur í matvöruverslunum og þjóðvegasjoppum og ég get ekki annað en fagnað þeirri þróun.“

Önnur bók um sömu persónu

Jónína er atvinnurithöfundur og er spurð að því hvernig það gangi fjárhagslega. „Ég er vel gift og gæti þetta ekki annars,“ segir hún. „Margir halda að ritstörf séu hið mesta lúxuslíf og ekki síst á þessum árstíma þegar umræðan um starfslaun listamanna gýs upp. Á síðasta ári vorum við Jóhanna staddar í búð þegar hún greip tekjublað Frjálsrar verslunar. Allt í einu sá ég að hún fór að kíma yfir einhverju í blaðinu. Þá hafði hún flett mér upp og henni fannst grátbroslegt að sjá hvað tekjurnar sem ég hafði voru í litlu samræmi við alla mína vinnu.

Ég nýt þess að skrifa og vakna snemma á hverjum einasta morgni og sest við tölvuna. Jóhanna hélt að þegar hún hætti að vinna hefðum við nógan tíma fyrir göngutúra og kaffihúsaferðir en henni finnst sú framtíðarsýn ekki alveg hafa ræst. Ég vil helst alltaf vera að vinna.“

Nú er þessi bók komin í búðir. Ertu farin að vinna að næstu bók?

„Um leið og ein bók endar þá er ég byrjuð að velta fyrir mér þeirri næstu. Ég ætla að skrifa aðra bók um sömu persónu því það er ýmislegt sem mig langar til að gerist í hennar lífi og í leiðinni leysir hún dularfull mál. Mér finnst gaman að sýna að fólk á hennar aldri er ekki dautt úr öllum æðum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“