fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Nærmynd af Gísla Pálma – Byrjaði í neyslu 11 ára – Varð vinsælasti rappari landsins – „Ég var alveg farinn í hausnum og braust inn alls staðar”

Fókus
Laugardaginn 26. október 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið mikið í kastljósi fjölmiðla þessa vikuna eftir að hann var ásamt vinkonu sinni sakaður um innbrot í hús í Vallarási og þjófnað á hinum ýmsu munum, þar á meðal skóladóti, tölvu og lyfjum. Íbúarnir hafa kært málið til lögreglu og Þórdís Árnadóttir, móðir gestkomandi stúlku sem glataði tölvu sinni og skólatösku í innbrotinu, hefur heitið veglegum fundarlaunum þeim sem getur hjálpað henni að finna þýfið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gísli Pálmi ratar á síður fjölmiðla. Hann var um tíma vinsælasti rappari landsins og hefur talað opinskátt um baráttu sína við fíkn alla tíð.

Ólst upp í Bandaríkjunum

Gísli Pálmi er sonur Sigurðar Gísla Pálmasonar, sem var áður kenndur við Hagkaup enda sonur Pálma Jónssonar í Hagkaupum, og Guðmundu Helenar Þórisdóttur. Gísli Pálmi fæddist árið 1991 og ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum. Í viðtali við Fréttablaðið árið 2015 sagði hann að skólagangan hefði verið strembin þegar að fjölskyldan flutti aftur til Íslands.

Fermdist ekki í jakkafötum úr Hagkaupum Viðtal við ungan Gísla Pálma fermingarstrák sem birtist í DV.

„Ég ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum og er því eiginlega tvítyngdur ef svo má segja. Slangrið kemur mikið þaðan. Hefðbundin íslenska getur verið svo stíf, svo mörkuð. Ég átti alltaf erfitt með að vera í íslenskutímum eftir að ég flutti heim. Mér fannst ég aldrei kunna neitt. Mér var sagt að ég kynni ekki íslensku,“ sagði hann og bætti við að hann hefði oft skrópað í grunnskóla, en Gísli Pálmi hefur verið duglegur að búa til íslensk nýyrði í sínu rappi. Á unglingsárunum hætti hann í skóla og fetaði vafasama braut, fulla af neyslu og smáglæpum.

Felur grófustu hlutina

Gísli Pálmi kom síðan eins og stormsveipur í íslenska tónlistarsenu árið 2011 þegar hann gaf út lagið Set mig í gang, á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Þegar þetta er skrifað er búið að horfa á myndbandið á YouTube tvö hundruð þúsund sinnum, en myndbandið vakti mikla athygli á sínum tíma. Í því er Gísli Pálmi ber að ofan og hnyklar vöðvana fyrir framan glæsilegan, svartan Range Rover-jeppa. Í viðtali við Fréttablaðið sumarið 2011 sagðist Gísli Pálmi vilja miðla sinni stormasömu ævi í gegnum tónlistina.

Range Rover og sólgleraugu Skjáskot úr myndbandi við lagið Set mig í gang.

„Ég nota mikið af slangri og það gæti þetta enginn nema að vera búinn að ganga í gegnum það sem ég hef gengið í gegnum — að vera búinn að hanga á röngum stöðum síðustu tíu árin. Þaðan fæ ég þennan orðaforða. Það er mikið af földum skilaboðum í textunum, sem ég segi ekki beint út. Ég fel grófustu hlutina, þeir koma fram í öðru formi,“ sagði hann og bætti við: „Ég var alveg farinn í hausnum og braust inn alls staðar, tók allt ófrjálsri hendi — alveg í bullandi neyslu auðvitað, rændi bílum bara til að rúnta. Ef það var eitthvað sem ég gerði ekki, þá er það líklegast ekki hægt.“

Í því viðtali sagðist hann vera búinn að snúa við blaðinu.

„Já, algjörlega. Ég fann innri frið fyrir nokkrum árum. Ég fékk metnað fyrir öðru. Ég er búinn að lifa lífinu nóg. Í staðinn fyrir að eyða orkunni minni í allar þessar hringekjur sem ég hef verið í síðustu ár, þá ákvað ég að vernda orkuna og nýta hana í tónlist og ræktun á sjálfum mér.“

Forsíðustrákur Á forsíðu fylgirits Fréttablaðsins árið 2011.

Ausinn lofi

Gísli Pálmi segist aldrei hafa notið fjárhagslega góðs af því að fæðast inn í Hagkaupsfjölskylduna og hefur staðið sjálfur í því að koma sér á framfæri, þar á meðal með því að standa sjálfur í myndbandagerð við lögin sín. Hann naut strax mikilliar hylli landans, sem og landsþekktra tónlistarmanna sem jusu hann lofi. Sölvi Blöndal í Quarashi lét til dæmis hafa eftir sér að Gísli Pálmi væri framtíðin í íslensku hipphoppi og það besta sem hann hefði heyrt í langan tíma. Gísli Pálmi tróð upp víða en það var frammistaða hans á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves árið 2011 sem vakti hvað mesta eftirtekt og kom honum endanlega á kortið sem ein skærasta stjarna íslensks rappheims. Þá fór fjölmiðlamaðurinn Kjartan Atli Kjartansson fögrum orðum um rapparann í skoðanapistli í Fréttablaðinu árið 2013.

„Gísli Pálmi hefur þróað listformið. Hann ögrar, fer sínar eigin leiðir og vekur umtal. Svoleiðis listamenn eru umdeildir. Auðvelt er að mislíka eitthvað sem maður skilur ekki. En þeir sem kafa dýpra, undir yfirborðið, verða ekki sviknir. Rapparar eins og Gísli Pálmi eru eins og flottur Playstation 3-leikur við hliðina á gömlu Nintendo-leikjunum sem eru betur geymdir í minningunni.“

Eftir Secret Solstice-hátíðina 2015 skrifaði David Roach Gunnarsson eftirfarandi á vefsíðunni Straumi:

„Gísli Pálmi er fenamón. Ég veit aldrei hvað mér finnst raunverulega um hann og hvað mér á að finnast um hann eða hvort að aðrir fíli hann af einlægni eða kaldhæðni. Fyrir mér er það hluti af aðdráttaraflinu. En akkúrat þarna þegar djúpsjávarbassinn nuddaði á mér innyflin og GP spígsporaði um sviðið eins og hani á kódeini með sjálfsálitið skrúfað í botn gat ég ekki annað en tekið minn táknræna hatt ofan í lotningu. Myndskreytingar á bak við hann eiga síðan skilið einhvers konar hönnunarverðlaun glæpamanna.“

Beðið eftir plötunni

Gísli Pálmi var búinn að fagna mikilli velgengni í tónlistinni þegar hann loksins gaf út sína fyrstu plötu árið 2015 sem hét einfaldlega Gísli Pálmi. Loksins er vægt til orða tekið því beðið var eftir plötunni með svo mikilli eftirvæntingu að þegar að verslun Smekkleysu var opnuð á útgáfudeginum biðu tíu manns eftir því að nálgast eintak af gripnum, sem af mörgum var talin plata ársins 2015. Platan seldist í bílförmum og var meðal þeirra söluhæstu í sögu Smekkleysu. Sama ár hitaði Gísli Pálmi upp fyrir Rae Sremmurd í Laugardalshöll og sló í gegn. Í Rokklandi í apríl árið 2015 opnaði hann sig enn og aftur um sína innri djöfla.

Löng bið Gísli Pálmi gaf út sína fyrstu plötu árið 2015.

„Þetta er bara alvöru tónlist. Þeir sem fíla alvöru tónlist bara elska þetta, það er ástæðan fyrir því að tekið er svona vel í þetta. Ég er ekkert að bulla, það þekkja margir söguna mína og vita að það sem ég er að gera er bara ekta. Ég hef ekkert að fela og hef aldrei falið neitt,“ sagði hann og bætti við að honum blöskraði magn fíkniefna í umferð á Íslandi.

„Það er mjög mikið af eiturlyfjum í samfélaginu okkar. Ég hef aldrei séð jafn mikið. Venjulega voru það háskóla- og framhaldsskólakrakkarnir sem voru á móti því en ekki í dag […] En það er ekki ég sem er að selja dópið lengur,“ sagði hann og óbeint játaði að hafa eitt sinn selt fíkniefni.

Árásin á Bam Margera

Gísli Pálmi vakti svo heimsathygli árið 2015 þegar myndband sem sýndi hann og tvo aðra karlmenn ráðast á Jackass-meðliminn Bam Margera fór í gríðarmikla umferð. Auk íslensku miðlanna fjölluðu erlendir miðlar á borð við Vice og New York Daily News um árásina. Forsvarsmenn Secret Solstice sökuðu Bam Margera um að hafa áreitt konur sem sinntu öryggisgæslu á hátíðinni. Eftir að Margera hafði farið af landi brott birti hann mynd af Gísla Pálma á Instagram-síðu sinni og sagði hann bera ábyrgð á áverkunum. Sagðist hann jafnframt hafa verið að tala við einhvern og snúið undan og því verið algjörlegra óviðbúinn barsmíðum. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Bam Margera, staðfesti í samtali við DV á sínum tíma að Jackass-stjarnan hefði lagt fram kæru á hendur Gísla Pálma og tveimur öðrum. Gísli Pálmi opnaði sig um atvikið í þættinum Rapp í Reykjavík sem sýndur var árið 2016 á Stöð 2.

Árásin Skjáskot úr myndbandi af árásinni á Bam Margera.

„Það eru fimm milljón manns sem horfðu á þetta vídeó, sem ég gat séð skilurðu bara á nokkrum síðum, bara á einni viku,“ sagði hann. „Ég vil ekki vera með neitt ofbeldi. Ég er ekki ofbeldismaður.“

Í sama þætti sagðist Gísli Pálmi hafa byrjað í neyslu aðeins ellefu ára gamall.

„Maður er löngu kominn á þann stað að vera fíkill, maður er búinn að brjótast inn úti um allt. Maður var að fjármagna neysluna sína með alls konar hætti og var með innbrotsþýfi og stolið dót,“ sagði hann og bætti við að hann hefði tekið eldri stráka sér til fyrirmyndar. „Þegar ég var 15 til 16 ára gamall var ég kominn langt út af brautinni og var á kolvitlausum stað.“

Vandaði Gísla Pálma ekki kveðjurnar Þessa mynd birti Bam Margera á Instagram-síðu sinni eftir árásina.

Faðir vill svör

Árið 2016 fjallaði Fréttablaðið um að Gísli Pálmi hefði beitt skyndihjálp á vin sinn sem missti meðvitund í portinu við spilastofuna Fredda. Var málið tengt við annan mann sem lét lífið heima hjá sér sama kvöld en grunur lék á að fentanýl hefði komið við sögu í báðum málum.

„Að sögn heimildarmanna Fréttablaðsins þekkti Gísli Pálmi báða mennina en hann var með tónleika umrætt kvöld. Sá sem missti meðvitund var á sviði með Gísla Pálma á tónleikunum en hann hefur lengi verið partur af teyminu hans,“ stóð meðal annars í fréttinni.

Sama ár steig Þorvarður Helgason, faðir Evu Maríu, fram í viðtali við Vísi. Þá voru liðin tvö og hálft ár síðan Eva María lést í partíi í Vesturbæ Reykjavíkur en banamein hennar var margfaldur dauðaskammtur af efninu MDMA, einnig þekkt sem Mollý. Eva fannst látin á heimili Gísla Pálma og biðlaði Þorvarður til rapparans að gefa sér frekari upplýsingar um dauðsfall dóttur sinnar. Áður hafði Þorvarður tvisvar vakið máls á þessu, fyrst í október árið 2014 og aftur ári síðar. Í viðtali við Vísi sagðist Þorvarður trúa því að um slys væri að ræða en vildi vita meira um þetta hörmulega atvik.

„Þó að það breyti engu í dag þá er maður einhvern veginn þannig gerður að maður vill vita ástæður fyrir hlutum,“ sagði hann. „Sérstaklega þegar hlutir verða með þeim hætti sem núna var. Við hefðum gjarnan viljað vita eitthvað meira en við vitum.“ Bætti Þorvarður við að hann teldi að Gísli Pálmi væri sá sem hefði hringt í Neyðarlínuna vegna andláts Evu Maríu.

Ekki í ástandi

Það var svo fyrr á árinu að það komst í fréttir að Gísli Pálmi hefði ekki troðið upp á bæjarhátíðinni Dýrafjarðardögum eins og stóð til. Pétur Albert Sigurðsson, einn skipuleggjenda hátíðarinnar, sagði í samtali við Vísi að rapparinn hefði ekki verið í ástandi til að spila, því hefði honum verið meinaður aðgangur að sviðinu.

Ekki í ástandi fyrir barnaskemmtun Gísli Pálmi kom ekki fram á Dýrafjarðardögum fyrr á árinu.

„Við sendum hann því bara heim aftur að hvíla sig, það var ekkert flóknara en það. Það urðu engin eftirmálar af því eða vesen, hann bara var ekki í standi og gat því ekki spilað þarna.“

Má maður bara ekkert lengur

Varðandi fyrrnefndar ásaknir um innbrot í Vallarási hefur DV ekki náð í rapparann til að fá viðbrögð hans um þessar þungu sakir. Eina sem hefur heyrst frá honum er á Facebook-síðu hans, þar sem hann virðist hæðast að ásökunum Þórdísar Árnadóttur:

„BÍDDU VÁÁ! má maður bara ekkert lengur.. hahaha hva er að frétta,“ skrifar hann við innleg Þórdísar þar sem hún nafngreinir Gísla Pálma og kærustu hans, birtir myndir af þeim og sakar þau um þjófnað. Því innleggi hefur verið eytt en önnur innlegg Þórdísar um fundarlaun og þjófnaðinn standa enn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 2 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“