Lést í hörmulegu bílslysi árið 1987 – Var mjög efnileg í fótbolta – Acadia-skólinn leggur treyjuna hennar til hliðar
Skólayfirvöld Acadia-háskólans í Kanada hafa ákveðið að leggja treyju íslenskrar stúlku, Gunnhildar Sifjar Gylfadóttur, til hliðar og heiðra þar með minningu hennar. Gunnhildur, sem var mjög efnileg í fótbolta, lést í hörmulegu bílslysi í Nova Scotia þann 26. nóvember árið 1987.
Gunnhildur var á þriðja ári í læknisfræði við Acadia-háskólann í Kanada þegar hún lést, tvítug að aldri. Sem fyrr segir spilaði hún með knattspyrnuliði skólans og var konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar skólans. Þó að Gunnhildur hafi haft mörg járn í eldinum var hún afburðanemandi og hlaut viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur.
Þó að 29 ár séu brátt liðin frá andláti hennar lifir minningin um þessa efnilegu stúlku enn hjá Acadia-háskólanum. Á hverju ári hefur fótboltamót í hennar nafni verið haldið í skólanum, en mótið laðar til sín fjölda ungra og efnilegra stúlkna á hverju ári.
„Það var auðvelt að þjálfa hana og hún var mjög góður nemandi.“
Í frétt á vef skólans kemur fram að á morgun, föstudaginn 9. september, verði minning Gunnhildar heiðruð sérstaklega þegar treyja númer 9, sem Gunnhildur lék í á sínum tíma, verður lögð formlega til hliðar. Treyjan hefur ekki verið notuð síðan hún lést, en á morgun verður hún formlega tekin úr notkun. Í fréttinni kemur fram að meðal þeirra sem munu sækja athöfnina séu meðlimir úr fjölskyldu Gunnhildar á Íslandi.
Í umfjöllun Morgunblaðsins árið 2005 kemur fram að Gunnhildur hafi byrjað að spila fótbolta hér á landi þegar hún var ung og lék hún með Víkingi og Stjörnunni. Hún flutti til Kanada þegar hún var níu ára gömul og bjó fjölskylda hennar þar í um tíu ár. Gunnhildur var markahæsti leikmaður kvennaliðs skólans á árunum 1985 til 1987 og leiddi liðið til sigurs í úrslitakeppni kanadískra háskólaliða árið 1987. Þá var hún úrvalsliði Nova Scotia það ár.
Í þessari sömu umfjöllun Morgunblaðsins kom fram að árið sem Gunnhildur lést hafi hún verið valin í kanadíska landsliðið og átti möguleika á að leika með landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Taívan. Þjálfari hennar á þessum tíma, Laura Sanders, minntist Gunnhildar með hlýjum orðum við minningarathöfn sem haldin var í skólanum í desember árið 1989. Ræða Lauru var birt í heild sinni í Morgunblaðinu þann 13. desember 1987.
„Gunnhildur var gáfuð og hæfileikarík manneskja.“
„Gunnhildur var gáfuð og hæfileikarík manneskja. Hún var gædd miklum knattspyrnuhæfileikum sem urðu þess valdandi að leiðir okkar lágu fyrst saman. Hún hafði meðfædda getu til þess að skora mörk. Það var auðvelt að þjálfa hana og hún var mjög góður nemandi. Þeir sem þekktu hana sem tónlistarmann segja hið sama um næmleika hennar fyrir tónlist. Hún hafði sjaldgæfa náðargáfu til þess að tjá sig í gegnum tónlist. Sjálfsöryggi hennar og eðlislægu foringjahæfileikar voru sérkenni sem höfðu sterk áhrif á meðsystkini hennar í tónlistinni og íþróttunum,“ sagði Laura.
Fjölmargir minntust Gunnhildar einnig með hlýjum orðum í minningargreinum í Morgunblaðinu á sínum tíma.
„Gunnhildur heillaði alla sem henni kynntust enda var hún alveg einstök, alltaf svo glöð og jákvæð og gat séð eitthvað gott í öllu og öllum og hefðu margir getað lært margt af henni,“ sagði í einni slíkri grein.
Athöfnin á morgun hefst klukkan 17 að staðartíma og verður hún haldin í kringum opnunarleiki karla- og kvennaliða skólans í háskólakeppninni í fótbolta.