„Þetta var ömurleg upplifun og þarna breyttist allt“
„Þetta var ömurleg upplifun og þarna breyttist allt,“ segir Anna Örvarsson um augnablikið þegar hún áttaði sig á því að Bandaríkin væru ef til vill ekki rétti staðurinn fyrir hana og fjölskyldu hennar.
Anna og fjölskylda hennar flutti frá Bandaríkjunum til Akureyri fyrr á þessu ári, en hún ræðir þetta og fleira til í viðtali við Akureyri Vikublað.
Anna, sem er amerísk, er gift kvikmyndatónskáldinu Atla Örvarssyni og saman eiga þau tvö börn, Óðinn og Sóleyju. Segja má að skotárásir hafi haft mikil áhrif á líf þeirra á undanförnum árum. Í viðtalinu rifjar Anna upp atvik sem varð árið 2002 þegar skólabróðir föður hennar réðst vopnaður inn í Virginia Tech-skólann og hóf skothríð. Faðir hennar hafði farið að læra lögfræði á sextugsaldri.
Maðurinn skaut skólastjórann áður en hann fór á bókasafn skólans þar sem faðir hennar horfði í augu hans. Föður hennar tókst að forða sér áður en maðurinn beindi byssunni að honum.
Fimm árum síðar, eða í apríl 2007, þegar nemandi í Virginia Tech myrt 32 einstaklinga í skólanum áður en hann svipti sig lífi. Bróðir Önnu var nýútskrifaður úr skólanum en árásin var framin í deildinni sem hann stundaði nám í. Tveir kennarar, sem unnið höfðu náið með bróður hennar, létu lífið í árásinni.
Þriðja árásin varð árið 2011 en þá skaut bróðir fyrrverandi barnapíu þeirra hjóna kærustu sína til bana áður en hann framdi sjálfsvíg. Fjórða árásin og sú sem fyllt mælinn varð í júní 2013 í Santa Monica í Kaliforníu.
„Ég varð að komast heim til dóttur minnar sem var þar hjá barnapíunni.“
„Ég var að sækja strákinn minn úr skólanum og var á leiðinni heim þegar ég ók inn í algjöra ringulreið. Það voru svartir lögreglubílar og lögregluþjónar úti um allt. Ég hef aldrei séð svona hræddar löggur en það vissi enginn hvað árásarmennirnir væru margir. Okkur var bannað að fara inn í hverfið en ég vissi um aðra leið. Ég varð að komast heim til dóttur minnar sem var þar hjá barnapíunni. Á endanum komst ég heim og sat á gólfinu í nokkra klukkutíma og lék við börnin í von um að þau hefðu hljótt. Á meðan fylgdist ég með fréttum í símanum og fékk loks þær upplýsingar að ástandinu væri lokið. Karlmaður hafði myrt föður sinn og bróður, kveikt í húsinu og farið svo út á götu þar sem hann stökk upp í bíl til konu sem hann lét keyra sig um hverfið á meðan hann skaut á fólk af handahófi áður en hann fór inn í skóla og skaut á fólk þar,“ segir Anna í viðtalinu og bætir við að önnur ástæða þess að fjölskyldan ákvað að flytja til Íslands sé til að börnin geti verið nær fjölskyldunni. Aðalatriðið sé samt það að fjölskyldan og börnin upplifi öryggi.
„Við viljum ala börnin upp á stað þar sem fólk reynir að gera hið rétta, er heiðarlegt og gott. Við viljum ekki að börnunum líði eins og gestum þegar þau koma hingað. Við viljum að Ísland sé „heima“ fyrir þau, staðurinn sem þau geta alltaf komið aftur til, staðurinn þar sem þau geta verið frjáls,“ segir hún en viðtalið má lesa í heild í Akureyri vikublaði.