fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wayne Rooney hefur rifjað upp skemmtilega og óvænta sögu af fundi sínum við argentínska goðsögnina Diego Maradona, eftir leik Manchester United gegn Real Madrid árið 2013.

Rooney sagði frá þessu í hlaðvarpinu sínu og nefndi Santiago Bernabeu sem sinn uppáhaldsleikvang. Hann rifjaði upp 1-1 jafntefli liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem Danny Welbeck skoraði eftir fyrirgjöf frá honum.

Þrátt fyrir góða frammistöðu var Rooney ósáttur þegar Sir Alex Ferguson tilkynnti honum að hann yrði á bekknum í síðari leiknum á Old Trafford. „Ég var brjálaður,“ sagði Rooney og benti á að hann hefði lagt mikið á sig fyrir liðið í fyrri leiknum. United tapaði síðan 2-1 og féll úr keppni.

Eftir leikinn fór Rooney á vinsælan veitingastað, Wing’s, þar sem hann hitti Maradona. Sá argentínski var í jakkafötum og með bindi, en Rooney mætti í æfingagalla.

„Hann tók af sér bindið og setti það á mig,“ sagði Rooney og hló að atvikinu. Fundurinn kom honum á óvart, en Maradona var reglulegur gestur í Manchester á þessum tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum
433Sport
Í gær

Mexíkó kynnir öryggisáætlun fyrir HM vegna óláta í landinu

Mexíkó kynnir öryggisáætlun fyrir HM vegna óláta í landinu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal gæti þurft að framkvæma sársaukafulla sölu á stóru nafni í sumar

Arsenal gæti þurft að framkvæma sársaukafulla sölu á stóru nafni í sumar