fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Pressan

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 14:39

Vladimir Putin, Rússlandsforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allt frá 1999 hafa völdin í Kreml verið í höndum eins manns, Vladímír Pútíns. Síðan þá hefur hann stýrt rússnesku skútunni og ákveðið hvert stefna skuli. En það kemur að því að þessu pólitíska tímabili lýkur.

Pútín er orðinn 73 ára en hefur breytt stjórnarskránni svo hann getur í sjálfu sér setið í embætti til 2036. En það er ekki hægt að líta framhjá því að hann er orðinn vel roskinn og mun ekki lifa að eilífu. Spurningin er bara hvort hann muni afsala sér völdum til arftaka síns áður en hann deyr eða halda fast í þau allt fram á hinstu stund.

The Daily Digest segir að John Kennedy, rannsóknarforstjóri Evrópudeildar Rand Corporation og fyrrum ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar varðandi málefni Rússlands, telji að Vesturlönd verði að vera undirbúin – „Vesturlönd verða að undirbúa sig undir dauða Vladímír Pútíns,“ sagði hann.

Hann telur að valdaskiptin, við dauða Pútíns, geti orðið ófyrirsjáanleg, langvarandi og blóðug.

Engin sterkir keppinautar Pútíns eru til staðar í Kreml því þeim hefur verið rutt úr vegi. Hver man ekki eftir fréttum um alla Rússana sem hafa „dottið“ út um glugga á síðustu misserum? Helstu stjórnarandstæðingarnir hafa síðan dáið í höndum yfirvalda.

Þróun stríðsins í Úkraínu getur haft áhrif á valdajafnvægið. Ef Rússar verða fyrir hernaðarlegum eða pólitískum áföllum getur staða mála í Kreml breyst.

Heilsufar Pútíns kemur einnig við sögu. Ef það versnar getur orðið bráð þörf fyrir að tryggja valdaskipti, sem lúta stjórn Pútíns og bandamanna hans og vernda arfleið hans.

Nokkrir hafa verið nefndir til sögunnar sem hugsanlegir arftakar Pútíns en í svo miðstýrðu kerfi eins og er í Rússlandi, getur eftirmaður hans nánast birst upp úr þurru þegar rétti tíminn rennur upp.

Kennedy telur að Rússland án Pútíns verði ekki endilega minna hættulegt en það er í dag. Landið muni standa frammi fyrir afleiðingum stríðsins í Úkraínu, nánu sambandi við Kína og fjölda vandamála innanlands.

Tíminn eftir dauða Pútíns geti því orðið dramatískur, bæði fyrir Rússland og heiminn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi