fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Pressan

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 11:30

Það er snjallræði að taka síma og tölvur úr sambandi á nóttunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir hafa tamið sér að slökkva á raftækjum með fjarstýringu eða með hnappi tækisins sjálfs. Rafvirkjar segja þó að þetta sé ekki alltaf nóg.

Segja rafvirkjarnir að það sé réttast að taka mörg venjuleg heimilistæki úr sambandi á nóttunni til að draga úr ónauðsynlegri rafmagnsnotkun og bilunum.

Meðal þeirra tækja sem rétt er að taka úr sambandi eru:

Hitatæki inni á baði – Sléttujárn og hárþurrkarar eru meðal þeirra tækja sem rafvirkjar benda oftast á í þessu sambandi. Þau notast við háan hita og geta verið heit lengi eftir að notkun þeirra lýkur. Ef þau eru í sambandi, aukast líkurnar á að þau ofhitni og að skammhlaup verði. Cnbcindonesia skýrir frá þessu.

Farsímar og tölvur – Margir láta farsíma og tölvur vera í sambandi á nóttunni. Þrátt fyrir að nútímatæki séu með vörn gegn ofhleðslu, þá nota þau samt rafmagn á meðan þau eru í sambandi. Þetta getur haft neikvæð áhrif á rafhlöðuna til langs tíma sem og hleðslutækið og innstungurnar.

Rafhlöðuknúin tæki með liþíum – Þráðlausar ryksugur, hleðslubankar og rafmagnstannburstar eru yfirleitt með liþíum rafhlöður. Það þarf að hafa sérstakar gætur á þessum tækjum þegar verið er að hlaða þau. Slitnar rafhlöður, skemmdar leiðslur eða hleðslutæki, sem eru ekki frá framleiðanda tækisins, geta aukið líkurnar á ofhitnun.

Sjónvörp og leikjatölvur – Sjónvörp, leikjatölvur og önnur afþreyingartæki nota oft rafmagn þegar þau eru á standby.

Eldhústæki á eldhúsborðinu – Kaffivélar, hraðsuðukatlar, brauðristar og loftsteikingarpottar eru tæki sem mörgum yfirsést. Það reynir mikið á þessi tæki þegar þau eru notuð og slit eða gallar í þeim geta valdið því að þau hitna. Það dregur mjög úr hættunni á þessu ef þessi tæki eru tekin úr sambandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust

Allt á suðupunkti og Trump heitir hefndum vegna þeirra sem létust
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi