fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

Ritstjóri ósáttur vegna Bieber-tónleika: „Við komumst ekki einu sinni út í búð“

Fengu bara einn passa þó tveir bílar séu á heimilinu

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 7. september 2016 19:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég ætlaði að bjóða gestum heim en þeir komast ekki. Hér verða allar götu lokaðar.” Þetta segir Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Hringbrautar og íbúi í Salahverfi, í viðtali við vefinn eirikurjonsson.is.

Eins og alþjóð væntanlega veit mun poppstjarnan Justin Bieber halda tvenna tónleika í Kórnum, annars vegar á fimmtudag og hins vegar á föstudag. Um 30 þúsund manns munu sækja tónleikana og því er viðbúið að talsverð umferð verði um Kórahverfið þessa daga.

Til að bregðast við þessu verður lokað fyrir umferð í nánasta umhverfi við Kórinn á tónleikadögunum, fyrir aðra en íbúa og ættu flestir íbúa í hverfinu að hafa fengið umferðarpassa sem dreifa átti í vikunni. „Við hjónin erum búin að fá sérstakan bílapassa en fengum bara einn þó tveir bílar séu á heimilinu. Við komumst ekki einu sinni út í búð,” segir Sigurjón í viðtali við Eirík Jónsson.

Með pössunum sem dreift var til íbúa fylgdu nákvæmar leiðbeiningar og kort yfir hjáleiðir, en sjálfur segist Sigurjón hvorki botna upp né niður í því. „Ég hélt kannski að ég gæti farið Elliðavatnsveginn en þar mega engir fara nema fjórir séu í bílnum plús farþegi; 4 + farþegi stendur á kortinu. Hvað þýðir það?,” spyr hann.

Fréttin á Eirikurjonsson.is.

Viðbót klukkan 20.58

Sena hefur sent DV athugasemd vegna þessarar fréttar. Þar segir að ekkert mál sé fyrir íbúa í Kórahverfi og nágrenni að fá eins marga passa og þeir þurfa. Hér má sjá nánar um það.

Þá segir að nokkuð hafi verið um að passar skiluðu sér ekki inn um lúgurnar á mánudag og þriðjudag eins og til stóð. Afgreiðslubás opnaði í morgun klukkan 11 við Kórinn þar sem íbúar geta sótt þá passa sem upp á vantar. Afgreiðslubásinn er í gámi við anddyri Kórsins, fyrir framan skólann. Til að hafa samband við afgreiðslubásinn við Kórinn er hægt að senda tölvupóst á netfangið ibuapassar@gmail.com eða hringja í síma 7863800. Básinn lokaði klukkan 19 í kvöld.

„Við ítrekum að allir íbúar í Kórahverfis munu komast leiðar sinnar. Umferðarpassarnir eru til þess gerðir að auðvelda þeim aðgengi og koma í veg fyrir umferðarteppur. Takmarkanir fara í gang kl. 16:00 á fimmtudag og föstudag og mun skortur á passa ekki hafa nein áhrif fyrr en þar að kemur. Póstdreifingin og Sena Live biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“