fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Ætla að ná fram réttlæti fyrir Söndru Sigrúnu

Margrét Fenton, móðir Söndru, vonast til að dómurinn yfir dóttur sinni verði styttur

Auður Ösp
Þriðjudaginn 1. nóvember 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við verðum að reyna eins og við getum að ná fram einhverju réttlæti. Það er augljóst að ef Sandra yrði dæmd á sínum forsendum þá myndi þetta líta allt öðruvísi út,“ segir Margrét Fenton, Magga eins og hún er yfirleitt kölluð, móðir Söndru Sigrúnar Fenton, en Sandra afplánar nú 37 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum vegna tveggja bankarána sem hún framdi í Virginíufylki árið 2013. Um er að ræða þyngsta dóm sem Íslendingur hefur hlotið, svo vitað sé, en sögu Söndru verður best lýst sem miklum harmleik.

Í ítarlegu viðtali við DV í ágúst síðastliðnum lýsti Magga þeim raunum sem Sandra og fjölskyldan hafa gengið í gegnum undanfarin ár. Meðferð máls Söndru fyrir bandarískum dómstólum þykir að mörgu leyti afar furðuleg en Sandra var meðal annars dæmd fyrir vopnaburð án þess að nokkuð vopn hefði verið til staðar. Þá telur fjölskyldan að litið hafi verið fram hjá fjölmörgum veigamiklum atriðum þegar dæmt var í málinu auk þess sem það flækti málið umtalsvert að um var að ræða tvö rán hvort í sinni sýslunni í Virginíu, annars vegar Norfolk og hins vegar Chesapeake.

Reynslulausn var afnumin í Virginíuríki árið 1995 og eiga fangar því ekki möguleika á að losna fyrr út vegna góðrar hegðunar. Sandra og fjölskylda hennar hyggjast nú fara fram endurupptöku málsins og knýja fram réttlæti. Ef allt fer að óskum mun Sandra eiga möguleika á að sjá Rylan, fimm ára gamlan son sinn, vaxa úr grasi, og fá jafnframt tækifæri til að nýta reynslu sína til góðs, en hana dreymir um að hjálpa öðrum sem villst hafa af beinu brautinni.

Fékk aldrei að tjá sig

Líkt og fram kom í viðtali DV við Möggu í ágúst er Sandra fædd á Íslandi þar sem hún bjó fyrstu tvö ár ævinnar, en hún hefur ætíð litið á sig sem Íslending. Hún þótti efnilegur námsmaður áður en hún varð háð sterkum verkjalyfjum í kjölfar slyss á unglingsárum, auk þess sem hún varð fyrir alvarlegu kynferðisofbeldi. Sökk hún í kjölfarið djúpt í neyslu fíkniefna.

Mæðgurnar á góðri stundu  ásamt syni Söndru, Rylan.
Mæðgurnar á góðri stundu ásamt syni Söndru, Rylan.

Bandarískir fréttamiðlar greindu frá því þann 13. ágúst 2013 að ung kona hefði gengið inn í útibú banka í hafnarborginni Norfolk í Virginíu, krafið gjaldkerann um peninga og gefið í skyn að hún væri með vopn – með því að hafa aðra höndina ofan í tösku. Hún hafi flúið út með peningana þar sem 33 ára karlmaður beið á flóttabíl. Þau hefðu síðan keyrt yfir til Chesapeake-borgar og rænt þar annan banka á sama hátt. Umrædd kona var Sandra en bílstjórinn var heróínsalinn hennar, maður að nafni Duane P. Goodson, en sá hafði miðað að henni byssu og hótað henni og fjölskyldu hennar dauða ef hún hlýddi ekki fyrirmælum hans. Sandra var handtekin samdægurs og var samvinnuþýð við lögreglu en það var fyrir hennar tilstilli að Goodson náðist tveimur sólarhringum seinna – með tvær byssur og allan ránsfenginn. Sandra var ekki með neitt á sér við handtökuna.

Sandra Sigrún á Íslandi.
Sandra Sigrún á Íslandi.

Mál Söndru og Goodson voru aðskilin fyrir dómi og voru þau dæmd hvort í sínu lagi, án þess að fjallað hafi verið um sameiginlega aðild þeirra í hvoru máli fyrir sig. Var Sandra ákærð – og sakfelld – fyrir rán, samráð um að fremja rán, notkun skotvopns í glæpsamlegum tilgangi og skotvopnaeign í ólöglegum tilgangi – þó svo að hún hefði hvergi notast við skotvopn eða verið með það á sér. Dæmt var síðar í máli Goodson, sem játaði á sig alla ákæruliðina, og hlaut hann styttri dóm en Sandra.

Söndru var skipaður lögfræðingur sem að sögn Möggu hafði lítinn áhuga á málinu og taldi það augljóslega tapað frá upphafi. „Hann sagði henni að játa allt umsvifalaust og ekki koma með neinar mótbárur; þá myndi hún fá eins stuttan dóm og mögulegt væri. Ef hún myndi neita eða þræta fyrir eitthvað myndi hún reita dómarann til reiði og fá mun þyngri dóm. Þar að auki myndi enginn trúa frásögn hennar. Þetta var auðvitað bara haugalygi. Hún fékk aldrei tækifæri til þess að segja sína hlið, hún fékk aldrei neina almennilega vörn,“ segir Magga og bætir við að þar af leiðandi hafi aldrei verið tekið til greina að Sandra hafi verið þvinguð til verknaðarins.

„Það kemur fram í dómskjölunum að hún sagði við lögmanninn sinn að hún hefði verið logandi hrædd um líf sitt á þessum tímapunkti, enda vissi hún að maðurinn væri hættulegur og til alls vís,“ segir hún jafnframt, þess má geta að Goodson bíður dóms fyrir morð sem framið var árið 2007.

Þar sem um var að ræða tvö rán hvort í sinni sýslunni kom ekki annað til greina en að Sandra fengi tvo dóma, einn fyrir ránið í Norfolk og annan fyrir ránið í Chesapeake. Fyrir ránið í Norfolk var hún dæmd í 18,7 ára fangelsi. Dómarinn í Chesapeake neitaði að leyfa Söndru sitja báða dómana af sér á sama tíma og gaf henni því önnur 18,7 ár, samtals 37 ár. Sá dómari hefur nú verið leystur frá störfum en að sögn Möggu er dómarinn þekktur fyrir gríðarlega og ósanngjarna dómhörku og þótti ekki hæfur í starfi. Er það annað atriði sem þau vonast til að muni hjálpa við endurupptöku málsins.

Fjölskyldan í einni af heimsóknunum til Söndru í fangelsið.
Fjölskyldan í einni af heimsóknunum til Söndru í fangelsið.

Sandra situr nú inni í Fluvanna Correctional Center for Women – ríkisreknu kvennafangelsi í Troy, í rúmlega 90 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Richmond. Þar er lífið erfitt og snýst um það eitt að lifa af; sjálfsögð réttindi fanga eru ítrekað hunsuð og aðstæður bágbornar. Sandra er engu að síður vel liðin af starfsmönnum fangelsisins að sögn Möggu; hún hefur stundað nám í rafmagnsfræðum og liðsinnt ungri konu í hjólastól við daglegar athafnir. Þá vonast hún til að verða innan tíðar flutt í þá álmu fangelsisins sem hýsir „góða“ fanga, sem ekki hafa sýnt af sér hættulega eða ógnandi hegðun.

Fluvanna kvennafangelsið í Virgínufylki.
Fluvanna kvennafangelsið í Virgínufylki.

„Þau skilja ekki hvað hún er að gera þarna, og finnst ótrúlegt að hún sitji inni fyrir vopnað rán. Hún er svo frábrugðin öllum hinum föngunum, þeim finnst hún svo róleg og þægileg.“

Óska eftir hjálp

Fjölskyldan hefur sett nú sett sig í samband við lögfræðing sem kannað hefur möguleika þess að sækja um svokallaða náðun, eða „clemency“, hjá ríkisstjóra Virginíufylkis. Sá er vongóður að sögn Möggu, og telur allar líkur á að hægt sé að fá dóminn styttan til muna. Magga segir ekkert annað koma til greina en að berjast fyrir réttlæti í málinu.

Í Bandaríkjunum hafa almennir þegnar ekki alltaf efni á réttlæti. Fjölskyldan hefur þegar varið nokkrum hundruðum þúsunda í undirbúningsvinnu lögfræðingsins en þarf nú að reiða fram rúmlega tvær milljónir íslenskra króna í lögfræðikostnað svo hægt sé að halda vinnunni áfram og taka málið alla leið. Til þess þurfa þau hjálp og hafa því komið á laggirnar söfnun undir nafninu Réttlæti fyrir Söndru. Hægt er að leggja Söndru og fjölskyldu hennar lið með því að leggja inn á söfnunarreikning 0565-26-130260, kt. 081062-5879. Hér má jafnframt finna facebooksíðu söfnunarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York
Fókus
Í gær

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bergur Þór: „Mér leið eins og þetta væri eina leiðin út“

Bergur Þór: „Mér leið eins og þetta væri eina leiðin út“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Birgitta samdi lag um ungan mann sem varð úti á Laugavegi – 11 árum seinna hitti hún bróður hans – „Veistu það, ég fékk svo mikla gæsahúð“

Birgitta samdi lag um ungan mann sem varð úti á Laugavegi – 11 árum seinna hitti hún bróður hans – „Veistu það, ég fékk svo mikla gæsahúð“