Sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn Baldursson þurfti að leggjast undir hnífinn á fimmtudag eftir að í ljós kom að hásin sem hann sleit í fótbolta í ágúst hefði gefið sig aftur.
DV varar viðkvæma við myndefninu hér fyrir neðan þar sem sjá má hvar hásinin var saumuð saman.
Samkvæmt færslu Gísla á Twitter verður hann í gipsi og spelku næstu átta vikurnar. Hann getur því ekki stjórnað Vikunni með Gísla Marteini sem verður á dagskrá RÚV á föstudagskvöld.
„Á morgun verður fyrsta skiptið á sjónvarpsferlinum sem ég missi af þætti. Myndirnar sýna hvers vegna,“ segir Gísli.
Menningarvitinn Bergsteinn Sigurðsson, starfsmaður RÚV, mun stjórna þættinum í fjarveru hans.
Gísli birti fyrr í dag nýjar myndir á Twitter-síðunni af aðgerðinni.
Á morgun verður fyrsta skiptið á sjónvarpsferlinum sem ég missi af þætti. Myndirnar sýna hvers vegna. @bergsteinn3 er mín Vala Matt. #vikan pic.twitter.com/KozzdJspDg
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) November 3, 2016