„Ég vil þakka fyrir góðan stuðning við Sjálfstæðisflokkinn og þakka sérstaklega öllu því fólki sem vann af miklum dugnaði og elju í baráttunni. Nú þarf ég ekki að leggja fram breytingatillögu á stjórnarskránni um að Birgir Ármannsson skuli ávallt sitja á alþingi, hvernig sem kosningar fari,“ skrifar Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Facebook-síðu sína. Þá kveðst hann sakna Össurar Skarphéðinssonar sem dettur út af þingi en Samfylkingin galt afhroð í kosningunum í gær.
Brynjar segir:
„Mér finnst hins vegar vont að missa af þingi mesta Oratorinn, Össur Skarphéðinsson. Er strax farinn að finna fyrir söknuði og óttast að kvöld og næturfundir á þinginu verði ekki jafn skemmtilegir og áður.“