fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

„Bráðnauðsynlegt til að halda geðheilsunni“

Eva H. Baldursdóttir er stöðugt að setja sér ný markmið í tengslum við hlaup

Ritstjórn DV
Mánudaginn 17. október 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar fólk hyggst taka lífsstílinn í gegn er algengt að skella sér út að hlaupa. Svo rifjast það fljótt upp hvað hlaup geta verið erfið, sérstaklega þegar formið er slæmt og veðrið vont. Aftur á móti eru sumir þrautseigari en aðrir og tekst að stunda markviss hlaup allan ársins hring. Eva H. Baldursdóttir tilheyrir hópi þeirra síðarnefndu. Hún starfar sem lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu auk þess að vera virk í stjórnmálum og einstæð móðir. Hún hefur því í nægu að snúast og sérstaklega um þessar mundir en hún situr í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður. Fyrir nokkrum árum byrjaði Eva að stunda götuhlaup og hefur stundað þau markvisst síðan. Eva segir hlaupin hafa gert ótrúlega mikið fyrir sig, líkamlega jafnt sem andlega, og er stöðugt að setja sér ný markmið í tengslum við þau.

„Ég byrjaði að hlaupa árið 2009. Hljóp þá fyrstu 10 kílómetrana í Reykjarvíkurmaraþoninu. Mig langaði að prófa götuhlaup, fannst það eftirsóknarverður lífsstíll og var forvitin. Ég hafði verið ágæt í íþróttum sem unglingur. Ég man eftir því að mér fannst það áfangi þegar ég náði að hlaupa samfleytt rúman 1 kílómetra, svo jókst þetta alltaf viku frá viku. Svo komst ég að því að hlaup henta mér ágætlega.“

Mikilvægt að finnast gaman

Eva segist hlaupa mestmegnis ein og að hún eigi þá stund með sjálfri sér og góðri tónlist. Hún telur þó góðan félagsskap alls ekki skemma fyrir.

„Við erum nokkur í vinnunni sem höfum verið að hlaupa saman og ég á eina vinkonu sem er metnaðarfullur hlaupari og það rekur mig talsvert áfram. Félagsskapurinn er mikilvægur í þessu, skemmtilegt að ná að sameina þetta tvennt. Ég er búin að stefna á það í rúm tvö ár að skrá mig í hlaupahóp og geri það örugglega í vetur því ég held að það sé gott til að ná betri árangri.“

Margir byrja að hlaupa en halda því svo ekki áfram, hver er munurinn á þér og þeim?

„Ég hef verið misvirk í hlaupum síðan ég byrjaði, yfirleitt þannig að ég hef lagt skóna á hilluna yfir veturinn. Síðustu tvö ár hef ég hins vegar hlaupið yfir vetrartímann, það er bara spurning um búnað. Lykilatriði er að setja sér raunhæf markmið og finnast gaman að hlaupa. Ef það er ekki hægt að finna gleðina í þessu þá mæli ég með því að fólk finni sér aðra líkamsrækt sem það hefur gaman af. Mín aðferð er að skrá mig í hlaup í nálægri framtíð, til að reka mig áfram í æfingum. Ég tala nú ekki um að skrá sig í hlaup erlendis. Síðan að setja sér metnaðarfull en raunhæf tímamarkmið og fagna smásigrum. Í fyrsta hlaupinu var áskorun að klára hlaupið og það getur verið markmiðið jafnframt fyrir nýja hlaupara. En að vera búinn að skrá sig í hlaup, það rekur mann áfram.“

Eva hefur tekið þátt í götuhlaupum í tveimur borgum á þessu ári og stefnir á fleiri hlaup erlendis í nánustu framtíð. Þá tekur Eva fram að aðrar æfingar samhliða hlaupunum skili góðum árangri enda geta hlaupin orðið leiðigjörn ef þau eru einhæf.

„Styrktarþjálfun og „interval“ æfingar í bland styðja mjög vel við hlaupin. Þá er mikilvægt að æfa í hófi og gott að hafa t.d. sundlaug og heita pottinn sem gulrót eftir hlaupin. Svo skiptir mjög miklu máli að borða rétt daginn fyrir keppnishlaup, góð kolvetni. Eiga orku á tankinum og ekki borða þungan mat. Tónlist er síðan algjört lykilatriði, ég get t.d. ekki hlaupið án hennar. Hún rekur mig áfram og heldur mér peppaðri. Þannig að þéttur hlaupalisti er hluti af gleðinni fyrir mig.“

Að lokum vill Eva taka fram að þótt hún finni fyrir sterkari líkama í kjölfar hlaupaáhugans þá sé árangurinn ekki síður mælanlegur á sálinni.

„Hlaupin hafa gert góða hluti fyrir mig, líkamann og ekki síður sjálfsmatið. Sterkur líkami hefur svo góð áhrif á andlegu hliðina. Eftir hvert hlaup og góðan tíma, líður mér alltaf eins og ég hafi sigrað heiminn smávegis. Það er alltaf góð tilfinning. Það gefur orku, minnkar stressið og heldur mér tengdri. Einfaldlega bráðnauðsynlegt til að ég haldi geðheilsunni. Þannig að þó að ég hafi ekki endilega tíma þá forgangsraða ég í þágu hreyfingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans