fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 12:00

Gareth Southgate, fyrrum landsliðsþjálfari Englands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gareth Southgate segir að aðeins stórt starf muni heilla sig aftur út á hliðarlínuna, en hann hefur verið án þjálfarastarfs í rúmlega 18 mánuði síðan hann hætti með enska landsliðið eftir tap gegn Spáni í úrslitum EM 2024.

Southgate, sem er 55 ára, segist ekki vera að leita sér að starfi eins og staðan er í dag, en útilokar ekki endurkomu í ensku úrvalsdeildina. Hann hefur verið orðaður við nokkur stór félög, þar á meðal Manchester United, sem gæti leitað að nýjum knattspyrnustjóra í sumar.

Fyrrum landsliðsþjálfarinn, sem stýrði einnig Middlesbrough á sínum tíma, segist þó ekki hafa áhuga á að taka við liðum í miðri deild. „Ég hef enga sérstaka löngun til að fara bara í eitthvert úrvalsdeildarstarf,“ sagði hann.

Hann bendir á að hann hafi þegar gegnt einu stærsta starfi heims með enska landsliðinu og upplifað stór kvöld og unnið með framúrskarandi leikmönnum.

Southgate viðurkennir að gagnrýni hafi beinst að því að hann hafi ekki unnið titil, en telur að besta leiðin til að sanna sig sé að taka við einu af stærstu félögum Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Trent fær á baukinn eftir mistök sín um helgina

Trent fær á baukinn eftir mistök sín um helgina
433Sport
Í gær

Setur glæsilega eign á sölu – Kostaði meira árið 2011

Setur glæsilega eign á sölu – Kostaði meira árið 2011
433Sport
Í gær

United ákveður tímasetningu til að ræða framtíð Bruno Fernandes

United ákveður tímasetningu til að ræða framtíð Bruno Fernandes
433Sport
Í gær

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum
433Sport
Í gær

Mætti fyrir dóm í gær – Grunaður um að hafa beitt konu ofbeldi

Mætti fyrir dóm í gær – Grunaður um að hafa beitt konu ofbeldi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Heyrði áhugaverða sögu um stöðu Rúnars í Kaupmannahöfn – „Viljum að hann fari annað“

Heyrði áhugaverða sögu um stöðu Rúnars í Kaupmannahöfn – „Viljum að hann fari annað“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Trú veðbanka á Íslandi meiri en þó ekki mikil

Trú veðbanka á Íslandi meiri en þó ekki mikil
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna