fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Lady Gaga er mætt aftur

Fór krókaleið til baka í eðlileikann – Ótrúlegur ferill óvenjulegs listamanns

Indíana Ása Hreinsdóttir
Miðvikudaginn 20. janúar 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Endurkoma Lady Gaga

Árið 2015 kom Lady Gaga til baka. Árið 2016 verður árið hennar.
Getur svo sannarlega sungið

Getur svo sannarlega sungið

8. febrúar 2015

Lady Gaga hóf árið 2015 með hvelli þegar hún tók við sjöttu Grammy-verðlaunum sínum. Verðlaunin fékk hún fyrir lagið Cheek to Cheek sem hún gerði í samvinnu við Tony Bennett og sýndi stjórstjarnan og sannaði fjölbreytileika sinn.

22. febrúar 2015

Lady Gaga gerir meira að segja Julie Andrews orðlausa með flutningi sínum á tónlist úr Sound of Music. Lagið tók hún á Óskarsverðlaunahátíðinni og var klappað lof í lófa fyrir.

25. febrúar 2015

Lady Gaga tilkynnir að hún muni verða hluti af sjónvarpsseríunni American Horror Story: Hotel. Hún er ekki aðeins poppstjarna! Hún er ekki aðeins djasssöngkona! Hún er líka leikkona!

18. júní 2015

Lady Gaga kemst í Hall of Fame og flytur lagið What’s Up er hún tekur við viðurkenningunni.

17. september 2015

Lady Gaga gefur út lagið Til It Happens to You með áhrifaríku myndbandi. Þetta er hennar fyrsta lag síðan Artpop kom út 2013 en þótt aðdáendur hafi elskað Artpop fékk það slæma gagnrýni. Skilaboðin í Til It Happens to You eru áhrifarík og talin mikilvæg í tónlistarlífinu. Hluti af ágóðanum verður gefinn til samtaka sem hjálpa fórnarlömbum kynferðisbrota.

10. desember 2015

Lady Gaga steig inn í nýjan heim þegar hún hlaut tilnefningu fyrir leik sinn í American Horror Story: Hotel.

„Mig dreymdi um að verða leikkona áður en mig dreymdi um að semja tónlist,“ sagði Lady Gaga með tár í augum þegar hún tók á móti Golden Globes-verðlaununum sínum fyrir leik sinn í American Horror Story: Hotel fyrr í mánuðinum og bætti við: „En tónlistin gekk fyrst upp.“

Engin tattú

Lady Gaga minnti helst á nútíma Marilyn Monroe þar sem hún stóð á sviðinu í klassískum svörtum kjól; ekkert glingur, skraut né búningur skyggði á fágað og glæsilegt útlitið. Meira að segja húðflúrið var horfið. Það eina óvænta í þessu fínlega fatavali var kannski hversu fyrirsjáanlegt það var.

Söngkonan mætti í kjól úr kjöti á MTV-hátíðina 2010.
Kjötstykki Söngkonan mætti í kjól úr kjöti á MTV-hátíðina 2010.

Krókaleið til baka

Tónlistarblaðamaðurinn Jason Lipshutz, sem skrifar fyrir The Fuse og Billboard, minnir á að engum hafi dottið í hug að Lady Gaga ætti nokkurn tímann eftir að taka á móti verðlaunum fyrir leiklist þegar hún var borin inn í stóru eggi, eins og á Grammy-verðlaununum 2011, né þegar hún kom fram sem karlkyns hliðarsjálf sitt á MTV-verðlaununum sama ár. Lipshutz segir að eftir áralanga ferð á móti straumnum hafi Lady Gaga þurft krókaleið aftur inn í eðlileikann. „Hún vildi verða leikkona áður en hún vildi verða söngkona en hún varð að verða leikkona og djasssöngkona áður en hún hélt áfram í poppbransanum. Og fyrir vikið er ferill hennar mun stöðugri,“ skrifar Lipshutz á Fuse.

„Mig dreymdi um að verða leikkona áður en mig dreymdi um að semja tónlist.“

Gervin burt

Lady Gaga sló í gegn árið 2008 með plötunni Fame. Born This Way kom út 2011 og fór beint á toppinn í yfir 20 löndum. Þriðja stóra platan, Artpop, kom út 2013 seldist vel en ekkert í líkindum við tvær fyrstu plöturnar svo stjörnur á borð við Beyoncé, Miley Cyrus og Lorde þustu fram úr Lady Gaga. Botninum var náð þegar hún lét æla yfir sig á tónlistarhátíðinni South By Southwest árið 2014. Eitthvað varð að breytast og hún breytti svo sannarlega um gír. Hún fjarlægði það sem hafði náð athygli okkar til að byrja með og minnti svo um munaði á að hún getur virkilega sungið. Frammistaða hennar á Óskarsverðlaunahátíðinni 2015 gleymist seint en þar söng hún lög úr söngleiknum Sound of Music og uppskar mikið lófatak.

Var auðmýktin uppmáluð þegar hún tók við fyrstu verðlaununum sínum fyrir leiklist.
Þakklát Var auðmýktin uppmáluð þegar hún tók við fyrstu verðlaununum sínum fyrir leiklist.

Mynd: epa

Ný plata væntanleg

Þótt Golden Globes-verðlaun séu ekki talin til mikilvægustu verðlauna var Lady Gaga auðmýktin ein þegar hún steig á svið og tók á móti verðlaunagripnum og nýtti allan sinn tíma til að þakka sínu fólki fyrir. Á hátíðinni staðfesti hún einnig að ný plata væri væntanlega á árinu – eitthvað sem aðdáendur hennar bíða spenntir eftir. Árið 2015 notaði Lady Gaga til að sanna sig. Næsta ár mun verða hennar. Sama hvaða leið hún fer getum við ávallt verið viss um að Lady Gaga verður alltaf hún sjálf, hrein og bein – hún er komin aftur og við erum öll komin í liðið hennar að nýju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta