fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 6. mars 2026 17:30

Ellikerling hefur tekið sinn toll af Nicholson og Leno. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsstjarnan fyrrverandi Jay Leno er orðinn gjörbreyttur frá tíma sínum sem stjórnandi The Tonight Show og The Jay Leno Show á sínum tíma. Leno eyðir mestum tíma að sjá um eiginkonu sína sem þjáist af alvarlegri heilabilun.

Leno, sem er orðinn 75 ára, giftist eiginkonu sinni Mavis Nicholson árið 1980, en hún hefur einkum verið þekkt sem femínskur aktívisti. Árið 2024 var greint frá því að Nicholson, sem er fjórum árum eldri en Leno væri að kljást við alvarlega heilabilun. Það var hún svipt sjálfræði og Leno tók yfir stjórn eigna hennar.

Greint hefur verið frá því að Nicholson viti oft ekki hvar hún er stödd eða hver eiginmaður hennar er. En ástin á milli þeirra er enn þá sú sama.

„Þegar þú giftist þá strengirðu heit,“ sagði Leno í viðtali. Hann ætli sér ekki að láta neitt koma fyrir hana. „Ég fer heim, elda mat fyrir hana, við horfum á sjónvarpið. Þetta er eins og áður nema að núna þarf ég að mata hana og gera alls kyns þannig hluti. En mér líkar það. Mér líkar að sjá um hana.“

Sjá einnig:

Jay Leno afhjúpar „splunkunýtt andlit“ eftir slysið

Þrátt fyrir að hún viti ekki alltaf hver hann er þá reyni hann að minna hana á þeirra fyrra líf. Sýna henni myndir af því sem þau voru að bralla í gamla daga.

„Þetta er svolítið gaman. Ég sýni henni kannski mynd af okkur með Obama forseta en hún segir að þetta séu ekki við,“ sagði Leno.

Eins og sést á nýlegum myndum þá er elli kerling einnig farin að taka sinn toll af Leno sjálfum. En hann lenti einnig í hrottalegu slysi fyrir nokkrum árum þar sem hann hlaut brunasár í andliti, höndum og handleggjum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa
Fókus
Fyrir 1 viku

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix