fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Hólmfríður áttaði sig á þessu á fyrirlestri með eiginmanninum – „Hann bara talaði inn í hjartað á mér“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. mars 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiginmaður Hólmfríðar Sigurðardóttur greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir þremur árum. Hún segir jafningjastuðning mikilvægan fyrir aðstandendur.

„Ég ætlaði ekkert endilega að fara,“ segir Hólmfríður og vísar þar til fræðsluerindis frá sálfræðingi Krabbameinsfélagsins, sem hún sótti með eiginmanni sínum. „Hann er að ljúka erindinu og þá segir hann: það þarf að hugsa um makann. 80% af körlum sem greinast með þetta krabbamein leita eingöngu til makanna. Hann bara talaði inn í hjartað á mér.“

Hólmfríður segir sögu sína á vef Krabbameinsfélagsins í tilefni af Mottumars, sem er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins.

Hólmfríður segist ekki hafa áttað sig strax á álaginu sem fylgdi krabbameinsgreiningunni.

„Krabbamein í blöðruhálskirtli hefur áhrif á svona það nánasta samband sem að par hefur. Og það að ganga í gegnum það saman, þetta er álag. Ég bara gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en eftir á hvað þetta hafði mikil áhrif á mig.“

Allt annað að tala við fólk sem hefur sömu reynslu

Krabbameinsfélagið Framför er eitt aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands og þangað hafa þau hjónin sótt fræðslu og stuðning.

„Innan vébanda Framfarar er samfélag sem við köllum Traustir makar. Þar erum við makarnir að hittast reglulega yfir vetrartímann. Fara í gegnum hvernig okkur líður og líka bara hvað við erum að gera í lífinu.“ Hólmfríður segir jafningjastuðning mikilvægan fyrir aðstandendur.

„Þeir makar sem að ég hef hitt segja að það sé allt annað að tala við fólk sem hefur sömu reynslu.“

Hún undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að fólk taki ábyrgð á sinni heilsu. „Fólk á mínum aldri, sem er rúmlega sextugt, flest okkar eiga börn, barnabörn og jafnvel barnabarnabörn. Allur þessi hópur treystir á það að við séum til staðar. Mér finnst svo mikilvægt að átak eins og Mottumars verði til þess að karlmenn á besta aldri taki ábyrgð á sinni karlaheilsu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu